Færsluflokkur: Tækifærisvísur
11.11.2016 | 20:47
Ofmat á eigin verkum
Þó sigli áhöfn Ess Eff Ess
Samfylkingunni núna
þrefalt fleiri þarf til þess
en þá sem manna brúna.
Oddný fyrir Árna Pál
engu hafði skilað
því berg frá fólki berst ei mál
ef botnstykkið er bilað.
Núna leiðir Logi Már
leifarnar sem fylgi fékk
þess örlög spunnust, þvert á spár
sem sprungið enda varadekk.
Dreymir um að gera díl
þó dugi ei á varabekk.
Enginn setur undir bíl
ónýtt, sprungið varadekk.
Logi ætlar að ræða við Katrínu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tækifærisvísur | Breytt 1.1.2017 kl. 15:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.11.2016 | 11:51
Stjórnarumboðið
Í framtíð bjartri ber hann af
Bensi, sem sjáum þarna
Hann vill það sem Guðni gaf
góðvininum Bjarna
Valdafíklar völdin þrá
og vilja ýmsu fórna
en svíkja alla ef að fá
umboð til að stjórna
Héldu sameiginlegan þingflokksfund | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tækifærisvísur | Breytt 1.1.2017 kl. 15:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.11.2016 | 21:47
Orðaleikur
Skrafl er orðið yfir mas
einnig rabb og mikið tal
Fyrir Gísla laut í gras
greddufulla Lilliendahl
Þurfti meir en þrjátíu stig
en þrefalt orðið "mella"
Hildur valdi söm við sig
en sigrað hefði ella
Bæði gætu verið grahl
en Gísla "böllur" "digur"
lék við "skuð" á Lilliendahl
og loksins hafði sigur
Gísli meistari, Hildur vann dónaflokkinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tækifærisvísur | Breytt 1.1.2017 kl. 15:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.4.2016 | 17:48
Bölvun arfsins
Hlaupa upp til hand' og fóta
haldandi þeim engin bönd.
Pabba hennar málsókn hóta
og heimta arfinn útí hönd.
Um það sem í vændum var
vissu fleiri en þessi tvö.
Efnt var því til útrásar
árið tvöþúsund og sjö.
Í Bretaveldi stuttur stans
og stefnt að doktorsgráðum.
Þar ala þurfti Anna hans
önn fyrir þeim báðum.
Allt er þetta í annál skráð
eins og þið víst munið
Og uppskeran er eins og sáð
en svo kom blessað hrunið.
Framtíðin var fyrir þeim
frestun náms í Oxfordskóla
Og hvergi sést er koma heim
hvað þau földu á Tortóla.
Þótt hvíslað væri að væru rík
þau virtust bara basla
En völl sér vild' í pólitík
vinasnauður Simmi hasla.
Nú þjóðinni um nös er núið
níðinga að kjósa sér
En erfitt er og sjálfsagt snúið
silfursjóð að eiga hér.
Enda raunin það svo reyndist
og réttað var á Austurvelli
að ráðherranum reiðin beindist
sem rjúfa vildi þing í hvelli.
Endirinn þó yrði annar
en að fórna einu fóli
Er því að kenna að þingrof bannar
þráseti á valdastóli.
-----------------------
Eflaust ríkti einhver sátt
og aflandsmálið aldrei skeð
hefði Bogi bróðir mátt
braska allan arfinn með.
Tækifærisvísur | Breytt s.d. kl. 18:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.4.2016 | 16:48
Fimmtíu manna húsfyllir
Hvorki fjölmenn fundahöld
eða friði spilla
þarf nú sá er þráir völd
ef þjóð, um fyr' nær villa
Og staður fyrir fundinn hans
fyrirfram var valinn
svo að færri en fimmtíu manns
fyllt gætu þar salinn.
Í ýkjubúning frétt er færð
ef fundað er á litlum stað
því "húsfyllir" er huglæg stærð
háð því hverjir túlka það.
-------------------------
Magnús Orri engan styggir
eins og þó gat orðið
Á heiðarleika hann ei byggir
er holar sér við borðið
Vilja reka heiðarleg stjórnmál | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tækifærisvísur | Breytt s.d. kl. 17:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.4.2016 | 14:01
Vandi að vera giftur
Hafa yfir auð sinn breitt
sem einstaklingar mega
En hjónin eru aðeins eitt
ef þau ekkert eiga
Segir frétt Kjarnans alranga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tækifærisvísur | Breytt 22.4.2016 kl. 00:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.4.2016 | 13:50
Carpe Diem! Guðni
Undir feldi sýknt hann sat
sinn að meta haginn.
Var orsök þess að Guðni gat
ekki gripið daginn.
Guðni Th.: Fyrsta sem ég sá var Ólafur Ragnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tækifærisvísur | Breytt s.d. kl. 13:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.4.2016 | 18:27
Silfurseta
Einari má þakka það
á þingi metin falla
Útlit er þó fyrir að
Óli lifi alla
Nú skoðar Össur ætla ég sé,
enda góður drengur,
að draga sjálfan sig í hlé
og sitja ekki lengur
Einar og Össur 25 ár á Alþingi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tækifærisvísur | Breytt s.d. kl. 18:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.4.2016 | 13:22
Greiningardeild Framsóknarmafíunnar
Athugasemdir valdhafa yfir línuna
Viðhlæjendur viljið þið
sem valdastóla leppið
Sigurjón og Sjónvarpið
sótt voru á teppið.
Tækifærisvísur | Breytt 21.4.2016 kl. 11:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.4.2016 | 12:43
Þorsteinn Már að græða
Nú Þorsteinn hefur þýfið tryggt
með þorska vísitölu
Þótt kvótinn gæti byggðir byggt
ef boðinn sé til sölu
Svartgóma komin til að vera | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tækifærisvísur | Breytt s.d. kl. 12:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)