10.10.2017 | 14:09
Loksins eitthvað af viti
Inga Sæland ætlar að taka á lífeyrissjóðasukkinu með því að láta þá greiða skatt af iðgjöldum við inngreiðslu. Þarna er vannýttur tekjustofn sem staðið gæti undir 40 milljarða innviðauppbyggingu á ári um ókomin ár. Og með því að skattleggja þetta fé strax þá er komið í veg fyrir að lífeyrissjóðaguttarnir tapi þessum 40 milljörðum í fjárglæfrafjárfestingum eins og United Silicon. Toppar einhver þetta!