Miðaldrakrísa útbrunnins stjórnmálamanns

bjarni litad harMiðaldrakrísa Bjarna Benediktssonar birtist ásjónum landsmanna í auglýsingaherferð peningavaldsins á skjám landsmanna á öllum stöðvum. Útlitsdýrkun á pari við 15 ára fermingarstelpu. Enginn hörgull á peningum þar þótt ríkisframlagið sé löngu upp urið. Kannski að Glitnir Holding hafi verið látinn greiða fyrir hárlitunina og andlitsmeðferðina í leiðinni. Verð að segja að svona spjátrungsháttur virka öfugt á mig. Kannski í lagi að nota svona trix á framhjáhaldssíðum sem Icehot1 en varla sem forsætisráðherra Íslands þessar síðustu vikur í starfi.  Mín skilaboð eru; Sættu þig við gráa hárið. Það er engin skömm að því að eldast. Eina skömmin er hvernig þú og þínir þingflokksmenn hafið komið fram gagnvart eldri borgurum þessa lands


a note to self

Muna eftir að reka þennan sýslumann eftir kosningar


mbl.is „Gríðarlegt inngrip í opinbera umræðu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framsókn

sigurc3b0urkingiÍ andstreyminu eltist við
og athyglina fangar
láta knéi fylgja kvið
kappann Sigurð langar

Nú lífeyrinn vill lána þér
og lætur mása móðinn
ekki lengur eignar sér
í-búðar-lána-sjóðinn

Þótt út úr þeirri örgu neyð
sem áður hafði Framsókn hannað
vel sé hægt að velja leið
er vandinn bara fluttur annað.


mbl.is Vill fund vegna svissneskrar leiðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slökkt á leiðarljósinu

bjarnibenSér keikur Bjarni ber á brjóst
en bara holur grefur
Því öllum öðrum er það ljóst
að engan stuðning hefur.

Löngu er það liðið hér
að lygi trúi nokkur
samt mannúðina eignar sér
Íhalds bullu flokkur

 


mbl.is „Eigum að senda út skýr skilaboð“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lævísi

Ef kjósa ei ætlirðu ákveðinn mann
öfuga sálfræðin dugar þér best
Uppgerðar lofræðu haltu um hann
og hrósaðu öllu sem oftast og mest

Þó allir hér viti að oflof er háð
einhverjir munu samt efast
En sé frækornum tortryggni í sálina sáð
mun sæmileg uppskera gefast.

 


Eyðileggjandi uppbygging!

30Ég sakna þess að heyra engan sitjandi Alþingismann tjá sig um þetta tilræði HS Orku gegn ósnortinni náttúru rétt sunnan núverandi marka friðlandsins á Hornströndum. Málið er einfaldlega of stórt til að leggja það alfarið á herðar 5 einstaklinga í hreppsnefnd Árneshrepps á Ströndum.

Það er borðleggjandi að stækka nú þegar friðlandið á Hornströndum svo það nái yfir allt svæðið allt suður til Ingólfsfjarðar að austanverðu og þaðan í beina línu yfir að Nauteyri í Djúpinu. Þessi aðgerð mundi duga til að bjarga svæðinu frá þeirri eyðileggjandi uppbyggingu sem þar er áformuð. Þetta er ekki aðeins mál eins eða tveggja landeigenda sem seldu frá sér vatnsréttindi.  Þetta er mál okkar Íslendinga allra. Byggðin í Árneshreppi þyrfti ekkert að breytast en allt eignarland innan svæðisins yrði tekið eignarnámi af ríkinu við fullnustu svona áforma.  Er eftir einhverju að bíða? Alþingismenn eru á launum og eiga að vera að vinna fyrir þjóðina en ekki sjálfa sig og flokkana. Hunskist nú til að mæta í vinnuna og færið Hvalárvirkjun úr nýtingarflokki ekki seinna en strax! Enda eru þau áform sem nú eru uppi ekki sambærileg við þann virkjunarkost sem áður var uppi á borðinu þegar litla virkjunin var sett í umhverfismat og þar með nýtingarflokk.


mbl.is „Engin glóra“ í Hvalárvirkjun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einhver þarf að tala við Sigmund

simmiHér er spurning fyrir geðlækna. Er hægt að fara í svo mikla afneitun að maður missi úr heilt ár af ævi sinni?

28.október næstkomandi, er nákvæmlega 1 ár liðið síðan ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar var slitið og við gengum til kosninga. En Sigmundur Davíð talar alltaf eins og hann hafi verið forsætisráðherra í síðustu ríkisstjórn, en bara farið í tímabundið frí og nú sé hann tilbúinn að snúa aftur og taka við stjórnartaumunum. Mér finnst þetta óþægilegt.  Og það er illa gert af þessu liði sem fylkir sér um keisarann og skýlir nekt hans, að vera svona meðvirkt.

28.október n.k. göngum við til kosninga og kjósum nýja áhöfn á skútuna Alþingi. Þá fyrst er hægt að huga að því að ráða skipstjóra. Og einhvern veginn hef ég það á tilfinningunni að það verði ekki Sigmundur Davíð sem verði fyrir valinu.  Því er það fullkomlega ótímabært að gera hans persónulegu minnisblöð, að möndlinum, sem þessar kosningar snúast um.

Því þetta sem hér birtist í samantekt blaðakonunnar, er engin stefna.  Þetta eru bara punktar úr minnisblöðum eins og menn hripa gjarnan niður til frekari úrvinnslu. Kannski er hægt að nýta þessa punkta en sú vinna á langt í land. Þegar Miðflokkurinn hefur klárað heimavinnuna má segja að hann sé tilbúinn í kosningar. En núna er brýnt að einhver tali við Sigmund og láti hann vita, að hann er ekki bara í fríi sem forsætisráðherra. Heldur hafi hann verið neyddur til að segja af sér vegna spillingarmála og hugsanlegra skattsvika. Í millitíðinni höfum við fengið yfir okkur ömurlegustu ríkisstjórn allra tíma og nú þurfum við þjóðin á fríi að halda frá honum og hans líkum. Þetta verður drengurinn að skilja. 


mbl.is Vill ráðast í kerfisbreytingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 16. október 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband