Kveðið við Sæma

2009 fór ég að venja komur mínar á bloggið hans Sæmundar Bjarnasonar.
þar var einnig velþekktur bloggari, Steini Briem. Einhvern veginn æxlaðist þannig að við fórum að yrkjast á. Til að halda mínum hlut til haga birti ég hérna það helsta sem ég orti
Allt eru þetta tækifærisvísur og ber að dæma sem slíkar. Flest skýrir sig sjálft en upprunann má lesa á blogginu hans Sæma hér tímabilið var 2009 til apríl 2010

p.s Sæmundarháttur í bloggi er að skrifa um blogg af lítilli hæversku LoL

Vekur oss til vitundar
á viskunni er ekkert lát
Heimsspekin hans Sæmundar
heimaskíts mig gerði mát

Létt stígur um gróinn stekk
stikar áfram niðursokkinn
Sæmundur hann gékk og gékk
gékk þó ekki í Bændaflokkinn

Um það veit ég ekki neitt
Á þó ekki á því von
að Sæmi bloggi útí eitt
eins og Jónas Kristjánsson

Þótt mörgum sé í hamsi heitt
og hengja vilji álf og strump
Á mér bítur ekki neitt
InDefence er bara prump

(p.s til glöggvunar þá hefur Jóhönnu verið líkt við álf og Steingrími við strump)


Víst er Sæmi greinagóður
og greindarlegt er bloggið hans
ekki skemmir andlegt fóður
á leið okkar til andskotans
-------------------------------------------------
Akureyrarprestur flytur til Noregs

Siðlaus þjóð í skuldahlekki
sett var vegna afbrota.
Ef allir flýja og borga ekki
er Guð þá gerður gjaldþrota?
----------------------------------------------
Ólafur Ragnar tjáir sig

Bessastaða búandinn
borgar ekki skattinn sinn
hirðir hann samt hlunnindin
horskur sveitarómaginn
--------------------------------------------------
Sæmi bloggaði um fyrsta hjólið sitt

Eftir túrinn yfirleitt
af ánægju hún hló og söng
hundrað sinnum hef ég  reitt
hringanár á minni stöng
-----------------------------------------------
Sæmi bloggaði um rjúpnaveiðar

Sjáðu Sæmi hvernig ég géri
sagði Hörður hróðugur
Lítinn háls úr liði snéri
löðurmennið blóðugur
-------------------------------------------------------
Þráinn Bertels flutti ræðu um Stórólf bónda

Þótt Alþingis um gangi gólf
gæruklæddar píkur
Starir bar'á Stórólfs kólf
Steini engum líkur
-------------------------------------------------
Limrur af tvennum toga

Bullið á blogginu er mikið
og bannfærð mörg fól fyrir vikið
En Sæmi er streit
og Steini það veit
að ekki má far' yfir strikið

Afsögn á borðið hann lagði
Icesave svo samþykkti og sagði:
"Þótt bilið sé breitt
þá er eðlið samt eitt,
skítlegt með gallsúru bragði"
-----------------------------------------------------
afsökun á leirburði

Oft er rímið heldur rýrt
og ræfilslegir hortittirnir líka
Engin vilji til að yrkja dýrt
andagiftin gerir enga ríka
------------------------------------------
       2010
------------------------------------------
Sæmi fór í frí til Kanarí

Þótt kvenfólkið á Kanarí
klæðist bara bikiní
Sæmi ekkert sinnir því
svamlar bara sjónum í
-------------------------------------------------
Sæmi seldi Hrafni Gunnlaugssyni ritvél

Þótt ofmat margan manninn blekki
mistök Hrafns í byrjuninni
skrattanum að skemmta ekki
og skila Sæma ritvélinni
------------------------------------------------
Lánabók Landsbankans var lekið

Ef að lífsins lánabók
lekið er á netið
sést hver syndir Steina tók
en Sæma hvergi getið
------------------------------------
Sléttubönd um Davíð Odds

Vargur brennu barmar sér
blá hendin penna beitir
Margur kennir garminn hér
sá halur Oddson heitir

eða

Heitir Oddson halur sá
hér garminn kennir margur
beitir penna hendin blá
Sér barmar brennu vargur
-----------------------------
um íslenskt mál!

Haukur alveg þorir því
að þrasa hér um þágufall
Fimur Sæmi flækir í
fallstýringum þennan kall
--------------------------------
Stein Briem var með dónaskap

Alltaf limi læðir að
lævís vísnasmiður
Ekk' er reisn að yrkj' um það
sem einatt lafir niður

Það ballarhjal sem birtist hér
berlega vakti meyna
Kama Sutra komin er
að hvetja Sæma og Steina
---------------------------------------------------------
vegna umræðu um hraðalinn í Sviss

Upphaf lífs úr einni frumu
úrkynjun og sifjaspell
Alvaldið með eld og þrumu
eyði því með nýjum hvell
---------------------------------------------------------
kviðlingar flugu oft milli mín og Steina Briem

Enginn skilur Íslending
upp hér spretta klíkur
Sendir íhald inná þing
afturbatapíkur

Þingmenn eru að þrætast á
um það hvað skal gera,
en Erla Ósk og Unnur Brá
enga ábyrgð bera.

Enga varaskeifu vil
vart þó hylji þvengur
Óra þína ekki skil
ertu vitlaus drengur?

Þeirra makleg málagjöld
munu eflaust bíða
sem eiga mök við álfafjöld
og álfkonunum ríða

Steini Briem byggði sér hús uppá heiðinni
og hann verslar í Bónus því það er í leiðinni
er það merki um dramb
ef hann ýfir sinn kamb
eða eðlileg útrás á reiðinni?
------------------------------------------------------------
Sæmi að skrifa um bloggið sitt og Dr. Gunna

Bloggið gæti borið af
bara ef Sæmi nennti að
setja inn mynd en ekki draf
eins og Gunni gerir það
------------------------------------------------------------
Smá tvíræðni

Flæðir rímið faglega
felur glæður haglega
stynur snótin laglega
undir Steina daglega

Ef framsóknarmaddaman fletti sig klæðum
og grátbæði Steina að geta sér króga
Ég stórlega efa að blóð í hans æðum
entist í verkið og holdrisu nóga
------------------------------------
Um Steingrím J

Hér er fjós en engin fljóð
flýtur skítur óbeizlaður
mokar flór í miklum móð
"meintur" vinstri maður
---------------------------------------------------------
Eitthvað að bauna á kirkjuna

Talið ekki vert einskis
að taka á þessum brestum
og steypa oní Steinkudys
staffírugum prestum

Virðist mér af verkunum
sem vitna á efsta degi
að Karl á vini hjá klerkunum
en Kristur átti það eigi
-----------------------------------------------------------------------------
fréttir bárust í dag af því að Ólína væri komin með leitarhund,
þá varð mér að orði:

Stundum er strembið að finna
ef stefnan týnist um stund
þeim áhyggjum ætti að linna
því Ólína' er komin með hund
---------------------------------------------
Limra til Steina Briem

Aldrei í hundrað og einum
úr glerhúsi hendum við Steinum
nema Briemari sé
og lepji lat-té
Þá grið engin gefum við neinum
----------------------------------------------
Orðaleikur

Þá vænisýki ekki skil
sem les hér á milli lína
að leggja stendur ekki til
Steina í götu þína
----------------------------------------------
Jón Steinar að skipta sér af

Þóttist setja sárið í
sótthreinsaðan fingur
Steinar Jón strax leyndi því
slyngur trúvillingur
--------------------------------------------------
Í minningu Óla Jó

Að verja kauðann
fram í rauðann
dauðann getur hún
sem selur spíra
í boli hlýra
í Klúbbi við Borgartún
---------------------------------------------------------
Steina fannst kveðskapurinn ekki berorður

Ég get alveg verið klúr
ekki er því að leyna
Kíktu í heimsókn útí skúr
og við látum á það reyna

Þar ég geymi gírahjól
og gamla spírakúta
Í vímu átti aldrei skjól
því alltaf skar ég hrúta

-------------------------------------------------------
Sléttubönd sem ekki einu sinni ég skildi

Skeytir engu kappinn klár
kvalinn holdsins losta
Breytir vitund tregans tár
trauðla slekkur þorsta

Þorsta slekkur trauðla tár
tregans vitund breytir
losta holdsins kvalinn klár
kappinn engu skeytir
---------------------------------
Sæmundur fór í grillveislu

Í Grímsnesinu grillað var
og gætt sér á góðum verði
Sagðar margar sögurnar
af Sæma frá Hveragerði
-----------------------------------------------------------------------------------
Sæmi er skákmaður góður en minna fer af hæfileikum Steina Briem
hann sagðist samt hafa unnið Friðrik Ólafs í fjölskák

Þótt unnið hafir eina skák
það engan feril skapaði
lánið lék við Steina strák
og stórmeistarinn tapaði
------------------------------------------------------------
Steini er samt kvennamaður að eigin sögn

Steini oft stúlkurnar seyðir
og stingur svo fingri í pjötlu
það gutlar og frussar og freyðir
sem fossandi eldgos í Kötlu

----------------------------------------------------------------------------------
Sæmi minntist á icesave og fjöldi mannsbirtist á blogginu hans

Að blogga um icesave er eins og að ýta á takka
hjá áráttuþráhyggju bloggurum sönnum
Þeir bölva og ragna og í sig þig hakka
Fyrir að fylgja ekki þjóðhollum mönnum

Að blogga um málfar er eins og að ýta á pásu
og aftur þá þagnar hver leiðindakjaftur
Og til baka þeir læðast sem áður þig lásu
og lífið á blogginu verður gott aftur
------------------------------------------------
milli mín og Steina

Steini er dæmi um umbúðir fínar
sem innrætinu er ætlað að hylja
en vel má það vera að blekkingar þínar
virki á þá sem að ekki neitt skilja
--------------------------------------------------------
Þegar Gunnar í Krossinum giftist Jónínu Ben

Ef meinbugi veiztu þá máttu nú tala
um misbresti ýmsa, en ellegar þegi
Djöfullinn drýldinn með horni og hala
hórkonum kennir að auðvitað megi
hjónabönd deyða í drottins nafni.
Guðfræði þeirra ég held ég hafni
------------------------------------------
Heimskspeki

Ég hefi ekki oní pytt
ætt þótt ekki sé ég fit
mitt er mitt og þitt er þitt
I dónt give a fucking shit

Mæltu manna heilastur
mikli Hvera-Sæmundur
Steini er samt stórastur
við steypu- rím og leirbakstur
------------------------------------------------------
Gosið á Fimmvörðuhálsi í boði Stöðvar 2

Oní Hrunagilið hraun
hellist eins og buna
Kristján Unnars ekki baun
óttast eyðinguna

Engum held ég hugnaðist
hérna óbreytt ástand
Iður jarðar opnaðist
upp reis Nýja Ísland
------------------------------------------
Um fornbækurnar

Egla af öðrum sögum ber
eins og ís af krapi
Ég afkomandi Egils er
enda forn í skapi
------------------------------------------
       Kreppubragur
------------------------------------------
Bloggarar velta mjög vöngum
um vandann sem við er að kljást
Rasandi' á áherzlum röngum
og regluverki sem brást

Hér reyndi á þolin mörk landans
sem þraukaði framyfir jól
en öryggið farið til fjandans
og fokið í flest öll skjól

Ástandið enn fór að kárna
og almúginn þoldi ekki meir
Hann hallmælti Davíð og Árna
og helvítis fíflinu Geir

En áður en skall á hér skálmöld
skelkaðir alþingismenn
samþykktu' að setja' af þau stjórnvöld
sem sviku og svíkja víst enn

Úti á Austurvelli
almúginn heimtaði hefnd
skúrkarnir skefldir í hvelli
skipuðu rannsóknarnefnd

Og allir sem ábyrgð hér bera
helst Árni og Davíð og Geir
Makleg upp málagjöld skera
með orðstí sem aldregi deyr

Nú skelfur allt sem skolfið getur
því skýrslan kemur víst senn
Og hengdir verða hér í vetur
hrunsins ábyrgðarmenn
-------------------------------------------------------------------------------------
Um Tryggva Herberts þingmann þegar sumar þingkonur felldu tár

Uppaf adamseplunum
andlit ekki lekkert
úr krókódílakirtlunum
kreist gat Tryggvi ekkert
--------------------------------------------------
Fyrsta úthlaup vinstri grænna katta

Ríkisstjórn sem reikult fley
ef raðir ekki þéttir
Vöndinn kyssa vilja ei
vinstri grænir kettir
--------------------------------------------
Um aðildarumsóknina til ESB

Það bíður okkar framtíð fín
með Fransmönnum og Tyrkjum
Liggja bara og lepja vín
og lifa svo á styrkjum

Frímann Jón sem falur er
fyrir nokkur euró
Framtíð Íslands fagra sér
sem file á Brussel's Bureau
--------------------------------------------
Fjármálaspeki

Gefið gæti ég án kvaða
góðu ráðin hér í reynd
en fjármál mín og fjárhagsstaða
falla undir bankaleynd
----------------------------------------------
Steini í stuði

Hvaða draugur hljóp í drenginn
og diktaði þetta rím?
Æri-Tobbi afturgenginn
er í Steina Briem
-------------------------------------------
Á breyskleikann alls ekki blindir
sem ber vott um siðferðisbrest,
að afsaka alls konar syndir
með "errare humanum est"

Ásdís Rán er aldrei down
órana hún kann að erta
Mundi bráðna Gordon Brown
ef bara fengi hann að snerta......

Biskupinn verslar í Bónusi
-breizk eru mannanna börn-
því er ég að þessu þusi?
þegar hann pakkar í vörn
--------------------------------------
Sæmi bloggar oft um hafragraut

Hafragraut og heilsufæði
hita Sæmi kann
Þótt örbylgjur og eðlisfræði
ekki skilji hann
----------------------------------------
um kastljósþátt

Brynja Þorgeirs fór í fjós
feiminn bóndann hrósi jós
í Írak jafnt sem austur í Kjós
dramatíkin leidd í ljós
-------------------------------------------------------------------------------
Sæma fannst hlutur sinn rýr og vildi vita hví við Steini værum að
hengja okkur á hans blogg

Það getur verið að Steini sé sníkill
Sjálfur hér kem ég meira sem fíkill
Bloggfíkn er meinsemd sem verður að vana
og helvíti erfitt að losna við hana

(Þá blandaði Gísli Ásgeirs sér í umræðuna og gerði lítið úr skáldskap Steina Briem)

Á höggstokki hrokans hér slátrað var lambi
og heimtað að blogglið í lotningu krjúpi
Dæmt var og drepið af fádæma drambi
enda dómarinn ættaður vestan úr Djúpi

Úr háum hnakki stundum detta
hrokafullir andans menn
ég feimnislaust get fullyrt þetta
því flötum beinum sit ég enn

(Einhverjir fleiri gagnrýndu kveðskapinn)

Sníkju-háttur heitir það
höfuðstaf að sleppa
Spara ættu allir að
af því það er kreppa
------------------------------------------------------------
9. apríl 2009 Rímslag lokið. Steini Briem farinn
----------------------------------------------------------------
Sæmi að blogga um bloggið

Orðspor þitt er opinbert
alla hingað dregur
mér finnst vera mest um vert
að vera Sæmilegur
--------------------------------------
Meira Um íslensku

Spakir spökulera af festu
spekingar um ká og gé
Skýra Sæma skiptir mestu
að skiljist það sem ritað sé
---------------------------------------
Dómstólar götunnar dæma
dólga sem talað er um
Burt þrjóta við þurfum að flæma
og þingmenn á harðahlaupum

-----------------------------------------------------------------------------------
Heimsóknum fækkaði mikið á síðuna til Sæma eftir að rímslag lauk


Af stati-stikkinni að dæma
stoppa hér færri en fyrr
Hver Grefillinn kom fyrir Sæma?
Hví var ekki Steini kyrr?
-----------------------------------------
Rannsóknarskýrslan birt

Við stýrið stóðu Solla og Geir
og stefndu hér öllu í klessu
Nú víkja vilja ekki þeir
sem vissu af öllu þessu

En líkt og áður lítil korn
að lokum fylltu mælinn
Og íhalds sjúka sjónarhorn
sett var undir hælinn

En stjórnin virðist stefnulaus
og stýrið illa brotið
Því að grunlaus þjóðin kaus
þinglið spillt og rotið

Buguð Solla brast í grát
og beygði haus í lotningu
Frekur Bjarni forðast mát
og fórnar bara drottningu

22.4.2010 kl. 19:35
---------------------------------------
Til Steinunnar Valdísar:

Græðgin þig í gönur dró
og gerði að þrælakvinnu
Fólkið hefur fengið nó
fáðu þér aðra vinnu.

---------------------------------------------------------------------------
Sæmi bloggaði um broskallinn sem Jón Ásgeir notaði

Um bölvun brosandi kalla
bloggar nú Sæmi hér
Og þykist þekkja þá alla
þeir dyljist ekki sér

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 30.4.2010 kl. 15:17
-----------------------------------------------------------------------------------------

Sæmundarháttur í bloggi er að skrifa um blogg af lítilli hæversku :)

Að blogga um bloggið er bærileg iðja
og bezt þykir Sæma ef myndir það styðja
en viðræður sjálfs hans þær segja  oss núna
að Sæmi er farinn að þurrmjólka kúna

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 20.9.2010 kl. 05:33


Þurrausið í þetta sinn
og þrotið kröftum skáldið.
Laxdalinn í leirnum finn
og langar þangað dáldið.

Sæmundur Bjarnason, 20.9.2010 kl. 08:10

-------------------------------------------------------------------------

Talandi um Útvarp Sögu og aðdáendurna, þá datt mér í hug ;

Þótt Eiður hann elski að hata þær
og hrokkinn sé af límingunum
hann aldrei þvegin orðin fær
frá Arnþrúði og kerlingunum

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 23.9.2010 kl. 04:43
----------------------------------------------------------------
Sæmi var eitthvað að blogga um róna og hunda

Hræsnin sem í ljós er leidd
að lögmál eðlis engu lúti
og rúmsæng fyrir hunda reidd
en rónar látnir hírast úti

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 27.9.2010 kl. 11:45

Laxdal yrkir ljóð um hunda.
Löngum eru mál hans fá.
Þangað allir skulu skunda.
Skelfilegt að hlýða á.

Sæmundur Bjarnason, 27.9.2010 kl. 13:41

Er eðlilegt að yrkja um dog?
Ekki skal ég dæma
En þetta er hálfgert hundablog
hjá höfðingjanum, Sæma.

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 27.9.2010 kl. 15:07

Þetta er hálfgert hundablogg.
Höfðinginn það segir.
Allur reis hann upp við dogg
og ákaft sig nú hneigir.

Sæmundur Bjarnason, 27.9.2010 kl. 16:07
---------------------------------------------------------
Fésbókin enn og aftur

Fésbókin er fáranleg
flest þar mér til ama
Minn því áfram arka veg
ef þér væri sama

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 15.10.2010 kl. 12:16


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björn Birgisson

Flottur kveðskapur, takk fyrir. Er þetta ekki efni í heila ljóðabók?

Björn Birgisson, 20.10.2010 kl. 16:37

2 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Takk Björn, ég sé mest eftir því núna að hafa ekki í gegnum tíðina haldið kveðskapnum betur til haga. Þetta er svona tilraun til að bæta úr því þótt seint sé

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 20.10.2010 kl. 16:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband