Verður vinna Stjórnlagaráðs nýtt?

Ég ætla ekki að gera mönnum upp óheilindi fyrirfram en ekki lízt mér á að þessi nefnd muni vilja breyta því í stjórnarskránni, sem brýnast er að breyta. Enda hefur það verið mín skoðun að Alþingi sé ekki fært um að gera þær breytingar á stjórnskipuninni sem nauðsynlegar eru, vegna bullandi vanhæfis.  Í stað þess að skipa þessa nefnd hefði verið nær að kjósa til nýs Stjórnlagaþings sem myndi starfa næstu 3 árin og klára þá vinnu sem Stjórnlagaráð byrjaði á.  Sú stjórnarskrá sem þannig yrði til yrði svo borin undir þjóðina í bindandi kosningu samhliða næstu Alþingiskosningum.

Ég er hræddur um að fjórflokkurinn muni láta sverfa til stáls á þessu kjörtímabili og afnema synjunarvald forsetans.  Til þess er leikurinn gerður en ekki til að auka hið beina lýðræði og jafna atkvæðisrétt eins og þjóðin vill.

En Ólafur er enn forseti og á meðan svo er mun fjórflokknum ekki verða kápa úr því klæði. Öllum breytingum sem fela í sér afnám 26. gr núverandi stjórnarskrár mun verða vísað til þjóðarinnar og fellt.  Það vita þingmenn og því verðum við almenningur, að vera á tánum  varðandi allt sem hugsanlega kemur frá þessari nýju nefnd Sigurðar Líndal.


mbl.is Skipað í stjórnarskrárnefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband