Óheppnir Vestfirðingar

Ekki er tímabært fyrir Vestfirðinga að fagna skilningi ráðherranna í starfsstjórn Bjarna Benediktssonar á þeim úrlausnarefnum sem þeir krefjast til að byggðin haldist og eflist.  Pólitíkusar eru í kosningaham og þá er venjan að lofa öllu. En þegar kosningavíman rennur af mönnum kemur annað hljóð í strokkinn. Þá verður sagt að ráðherrar í starfsstjórn séu ábyrgðarlausir af loforðum gefnum í hita leiksins.

Vestfirðingar eiga að vísa til frumbyggjaréttar varðandi réttinn til að stunda fiskveiðar í atvinnuskyni allt að 6 mílum frá grunnlínupunktum úti fyrir Vestfjörðum. Á móti gefi þeir frá sér réttinn til að leggja til land undir virkjanir eins og  þá sem nú er á teikniborði HS Orku. 

Varðandi fiskeldisáformin í Djúpinu þá er sjálfsagt að bjóða þau réttindi upp og úthluta til hæstbjóðenda. Engin ástæða er til að hlusta á frekjuna í þeim sem vilja bara stunda eldi í eigin ám í eigin ábataskyni. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband