Sakamálaleikþátturinn Fall Glitnis

Aumingja Sigurður Kári gerir í færslu á fésbók vont verra.  Það sem á að vera vörn fyrir don B. verður að enn einni árásinni á fjölmiðil af hendi valdaflokksins í Valhöll. Nú er það ríkisrekni fjölmiðillinn RUV sem sætir árásum. Þessi fyrrum aðstoðarmaður don B. er ekki marktækur. 

Sakamálaleikritið skrifar sig sjálft þessa daga.  Grípum niður í nýjasta þætti:

Á meðan Sigurður Kári, Pétur H Blöndal og Ólöf Nordal unnu að frum­varpi til breyt­inga á skulda­jöfn­un­ar­regl­um gjaldþrota­skipta­laga var Bjarni Ben önnum kafinn við að bjarga eigin verðmætum úr bankanum. Á meðan þremenningarnir,félagar hans reyndu að koma í veg fyr­ir að kröf­ur líf­eyr­is­sjóðanna myndu renna inn í þrota­bú gömlu bank­anna og enda í hönd­um er­lendra kröfu­hafa, situr Bjarni á fundum með stjórnendum Glitnis og skipar þeim að opna fyrir viðskipti hjá Sjóði9 til að faðir hans geti tekið út litlar 1200 milljónir! Á meðan þremenningarnir voru á fullu að vinna að almannahag var Bjarni á fullu að vinna að eigin hag.


mbl.is RÚV dró upp „kolranga mynd“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband