Borgarlögmaðurinn

Edda Schram var handvalin sem borgarlögmaður af Degi B. borgarstjóra þótt hæfari einstaklingur hefði sótt um. Sjálfstæðismaðurinn í Innkauparáði hefur kvartað undan fálæti borgarlögmanns.Er skýringin pólitísk eða fagleg? Gott væri ef borgarlögmaður stigi fram og bæri af sér sakir.


Félagsbústaðir

Ég hef aldrei skilið þetta concept "Félagsbústaðir"  Þarna er þjónustu sem fellur undir velferðarsvið komið fyrir í sjálfstæðu félagi sem á að vera sjálfbært rekstrarlega og í armslengd frá afskiptum kjörinna fulltrúa.

Það getur vel verið réttlætanlegt að hafa þetta rekstrarform en það á tvímælalaust að skilgreina starfsemina sem velferðarþjónustu sem á ekki að standa undir sjálfri sér heldur njóta styrks úr sameiginlegum sjóði borgarbúa eftir því sem þörf krefur.  Þannig á að setja þak á leigu sem hlutfall af ráðstöfunartekjum leigjenda en á sama tíma verður má ekki slá af kröfum sem leigusölum ber að fullnægja varðandi viðhald og eftirlit með leigðu húsnæði.

Aðkoma samtaka leigjenda að stjórn félagsins er rugl. Leigjendur þurfa bara að þekkja rétt sinn og skyldur og vita hvert á að leita með kvartanir. Ef leigjendur beindu til dæmis kvörtunum varðandi myglu og raka til heilbrigðisnefndar þá myndu örugglega flest mál leysast farsællega.

Varðandi Írabakkamálið þá vil ég vita meira um þær skemmdir sem verið var að lagfæra áður en ég tek undir kommentakórinn. Breiðholtið var byggt með hraði og í blokkirnar var notað gallað sement. Þar fyrir utan eru þær allar komnar á tíma endingarlega sem kallar oftast á stórfellt og dýrt viðhald. Einangrun og klæðning er kostnaðarsöm en það verður líka að gæta aðhalds. Hygginn húseigandi ræður við slíkt en ekki víst að sama gildi þegar einhver verkfræðistofa er fengin til að gera tillögur.  Sérstaklega ekki ef ekkert kostnaðarmat liggur fyrir í upphafi.

Ég myndi til dæmis vilja vita hvað hefði kostað að rífa Írabakka blokkina í stað þess að gera við hana. Þarna liggur ábyrgð stjórnar félagsins fyrst og fremst. Að kalla eftir réttum upplýsingum og geta tekið upplýstar ákvarðanir í framhaldinu.  Heiða Björg er greinilega ekki rétti fulltrúinn til að sitja í þessari stjórn og taka fyrir það þóknun. Þangað á að velja fólk sem kann og getur.  Ekki bjána sem þykjast kunna og geta.


mbl.is Léleg fjármálastjórn aðeins hluti vandans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skoðið bara reikningana!

Hvernig skilgreina kjörnir fulltrúar ábyrgð sína? Er fjallað um vel skilgreinda ábyrgð í siðareglum og eru einhver viðurlög þegar þær reglur eru brotnar?  Um þetta ætti næsti borgarstjórnarfundur að fjalla en ekki karp um endurskoðun á augljósum axarsköftum og klúðri sem meirihluti borgarstjórnar ber einn ábyrgð á.  Eru menn að vona að endurskoðun muni leiða eitthvað annað í ljós en þeir vita nú þegar?  Og ef borgarfulltrúar vita ekki hvað fór úrskeiðis þá eru þeir ekki að vinna vinnuna sína!  það er bara svo einfalt. Þið eruð með reikningana. Skoðið þá!

Og ástæðan fyrir því að menn sumir eru ekki að vinna vinnuna sína er sú hefð sem skapast hefur með meirihlutamyndunum sem ganga þvert á lýræðislegt val fulltrúa. Meirihluti sem oftar en ekki veltur á einum fulltrúa er ekki það sem fólk vill. Fólkið, kjósendurnir eru að kjósa til þess að sínir menn hafi áhrif. Þar af leiðir á að breyta lögunum og afnema formlegt meirihlutaræði í sveitafélögum þar sem fleiri en einn listi er borinn fram. Það er lýðræðslegra að allir fulltrúar beri jafna ábyrgð og hafi jafna aðkomu að öllum málum. Sá meirihluti sem þannig myndast er hinn eini rétti.  En það þarf líka að setja reglur um að kjörnir fulltrúar geti ekki jafnframt orðið borgar- eða bæjarstjórar. Kjörnir fulltrúar eiga að sinna stefnumótun og eftirliti en ekki sinna rekstri eins og nú er gert. Og það þarf að minnka þessa yfirstjórn sem engu skilar nema auknum kostnaði og minni ábyrgð.

En fyrst og síðast komið ykkurr saman um siðareglur og ákveðið hvers konar brot leiði sjálfkrafa til afsagnar. Ekki meiri sandkassaleik og fliss!


mbl.is Segja innri endurskoðun störfum hlaðna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrstu skóflustungur kostuðu okkur 152.910.00

fiskars18 glænýjar stunguskóflur voru vígðar í dag. Ekki er annað að sjá en allir hafi verið glaðir með nýju skóflurnar sem keyptar voru í Byko fyrir þetta tilefni. Sýndist þetta vera Fiskars skóflur af dýrustu gerð sem kosta núna 8.495 krónur í vefversluninni. En hverjir ætli hafi hirt þessa leikmuni þegar slökkt var á tökuvélunum?  Ætli ráðamennirnir okkar hafi bara tekið þær með heim í stað þess að afhenda þær Ríkiskaupum?  Ég bíð spenntur eftir að sjá 18 nýjar skóflur auglýstar til sölu á bilauppbod.is  á næstu dögum.  Nema náttúrulega að það sé búið að stela þeim og koma til ættingja og vina...

Varðandi þessar fáránlegu byggingarframkvæmdir ofan í fárveiku fólki þá vona ég að allir þeir sem ábyrgð bera á þessari framkvæmd eigi eftir að leggjast inn á landspítalann á meðan á framkvæmdum stendur til að upplifa þá andlegu pyntingu, sem hávaðinn vegna framkvæmdanna veldur þeim, sem ekkert geta farið.  Að ég tali ekki um starfsfólkið.  Hversu margir munu hreinlega gefast upp og segja upp vegna hávaða og annarra óþæginda sem fyrirsjáanlegt er að verði af þessum framkvæmdum næstu 20 ár!  Því það er örugglega sá tími sem þetta á eftir að taka miðað við þá snillinga sem standa að framkvæmdunum í dag. Hvað ætli sé annars að frétta af sjúkrahótelinu? Þarf kannski að fara í viðgerðir á því áður en það er einu sinni tekið í notkun. Eða skanninn sem ÍE gaf?  Og svo vogaði ráðherrann að tala um tæknilegasta fullkomnast sjúkrahús í heimi spilandi á skófluna sína úr Byko eins og hún væri sjálfur Jimmy Page. Þvílíkir loddarar og auðnuleysingjar.


mbl.is Tímamót í sögu Landspítala
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dagur var plataður

Það er mín niðurstaða eftir ytri endurskoðun á braggamálinu svonefnda, að Dagur B. Eggertsson hafi verið blekktur til að heimila endurbyggingar á húsarústunum við Reykjavíkurveg 100. Þau gögn sem ég byggi aðallega á er minnisblað sem unnið var fyrir skrifstofu eigna og atvinnuþróunar Reykjavíkurborgar og lagt var fyrir Borgarráð 17.september siðastliðinn auk víðtækrar fjölmiðlaumfjöllunar og yfirlýsinga einstakra aðila varðandi þetta mál.

Af gögnum málsins má ráða að hugmyndasmiður verkefnisins sé Margrét Leifsdóttir arkitekt og starfsmaður hjá Arkibúllunni. Hún hafi svo fengið Ara Jónsson rektor Háskólans í Reykjavík til að leggja verkefninu lið með vilyrði um að Háskólinn myndi engan kostnað bera af verkefninu en njóta umtalsverðs ávinnings í formi ókeypis afnota af nýuppgerðum húsakynnum í göngufæri við skólann á besta stað í Reykjavík! Þetta var upprunalega viðskiptamódelið.

 

Blekking númer 1.

En þau Margrét og Ari vissu sem var að fleira þyrfti til. Þá var gripið til blekkinga og reynt að fá Minjastofnun Íslands til liðs við verkefnið (sbr. bréf dags. 25.júlí 2015) Þótt Minjastofnun hafi bent á, að braggarústirnar féllu ekki undir lög um vernd menningarminja þá var hún samt óbeint orðin aðili að verkefninu eða vitorðsmaður sem vigt var í! 

Blekking númer 2.

Það er sennilega á þessum tímapunkti sem verkefnið er kynnt fyrir Degi borgarstjóra og hann blekktur til að gefa grænt ljós að undangenginni úttekt sem verkfræðistofan Efla vann og var í raun forsendan fyrir því að réttlætanlegt var talið að ráðast í verkefnið.

Blekking númer 3.

Þegar búið var að koma verkinu af stað og Margrét orðin umsjónarmaður og prókúruhafi þá er komið að Ara rektor. Hann fer þá til fundar við Dag borgarstjóra með tilbúinn húsaleigusamning til undirskriftar sem stórskaðar Reykjavíkurborg fjárhagslega en tryggir Háskólanum í Reykjavík stórkostlegan ávinning með því að mega framleigja nýuppgerða braggann til veitingareksturs fyrir tvöfalda þá upphæð sem Háskólinn er látinn borga fyrir allt húsnæðið. Reykjavíkurborg er meira að segja látin bera kostnað af öryggiskerfum Securitas fyrir á aðra milljón og kaupa einhver listaverk til skreytinga af Berlinord fyrir 956.619 krónur

Niðurstaða

Hvað sem líður digurbarkalegum ummælum forseta borgarráðs og fulltrúa Pírata í borgarstjórn, að ekki verði heimilaðar meiri fjárveitingar til verksins þá eru það marklaus orð. Húsaleigusamningurinn um hina leigðu eign bindur hendur borgarfulltrúa og ef Dagur B. stígur ekki fram og viðurkennir, að hann hafi verið blekktur,þá mun þetta mál sennilega leiða til falls núverandi meirihluta. Annað er óhugsandi. 

 

Heimildir: bréf 2 minnisblað skrifstofu eigna og atvinnuþróunar


mbl.is Dagur farinn í veikindaleyfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband