Tilskipanir ESB eru ekki samningsmál

Þetta kjaftæði, sem haft er eftir Guðlaugi Þór stenst örugglega enga skoðun.  Fyrir ESA gildir, að annað hvort eru tilskipanir innleiddar eða þær eru það ekki. Og ef þær eru það ekki, þá er um samningsbrotamál að ræða.  Hér er ekki verið að ávarpa yfirvaldið í Brússel, heldur heimska íslendinga með keyptum lagatækniskýringum, sem vitað er að halda ekki vatni.

Svona ætla menn að koma málinu í gegn og koma í veg fyrir að þjóðin geti krafist þjóðaratkvæðagreiðslu fyrir tilstilli inngrips forseta Íslands. Það má ekki verða.  Þessi tilskipun er brot á stjórnarskrá og hún gefur fámennum hópi fjársterkra einstaklinga vald til að ráðskast með orkuauðlindir þjóðarinnar til mikils kostnaðarauka fyrir almenning og fyrirtæki. Óvinurinn er ekki útlendingar. Óvinurinn er fjármagnseigendur sem fá að auðgast á kostnað þjóðarhagsmuna. Við viljum að fyrirkomulag á nýtingu fallvatna og jarðvarma verði alfarið í höndum ríkisins og það fyrirkomulag verði rammað inn í stjórnarskrá.

Fyrirvari ríkisstjórnarinnar gerir ekkert nema fresta endanlegu afsali þjóðarinnar á yfirráðum yfir eigin orkustjórnun til yfirvaldsins í Brússel. Þeir vita að svona afgreiðsla stenst ekki samningsákvæði EES. Málið verður kært og ESA dómstóllinn mun þvinga fram fulla innleiðingu sem verður of seint að stöðva þá.  Núna er eina tækifærið til að láta reyna á EES samninginn og hafna þessari tilskipun alfarið.

Höfum hátt og byrjum að safna undirskriftum til að þrýsta á Guðna Jóhannesson um að skrifa ekki undir þessa landráðatilskipun landráðaaflanna á Alþingi.  Það þarf að hafa snör handtök því málinu mun örugglega verða hraðað í gegnum þingið í ljósi hinnar almennu andstöðu úti í þjóðfélaginu


mbl.is Leggja til orkupakka með fyrirvara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kvótabörnin sem landið erfa og makrílinn eiga

Í stjórnmálum er gjarnan talað um smjörklípu, þegar athygli er viljandi beint að aukaatriði, til að koma í veg fyrir umfjöllun um stærri og afdrifaríkari ákvarðanir. Þannig átti að nota dóm Mannréttindadómstólsins til að fela afgreiðslu 3. orkupakkans. En þetta á ekki við um Kristján Þór Júlíusson kvótagreifaráðherra. Fyrir honum er hver dagur hrein guðsgjöf í þjónustu hans við kvótahirðina. Og hann virðist enga grein gera sér fyrir því, að flestum finnst hagsmunagæslan löngu komin yfir öll þjófamörk. Nýjasta afrekið hans er að kvótasetja makrílinn í þágu stórútgerðar á kostnað hundraða smábáta, sem gætu hafa styrkt sjávarbyggðir kringum landið með frjálsum veiðum eins og verið hefur hingað til. En Kristján Þór varðar ekkert um þjóðarhag. Hann er í vinnu hjá stórútgerðinni og hefur aðeins skyldum að gegna við Þorstein Má og Binna í Vinnslustöðinni.

Og hann er ekkert að fela þessa hagsmunagæslu. Hún blasir við öllum sem vilja vita.

En gjöfin á makrílkvótanum slær samt öll met í einkavinavæðingu náttúrugæða. Þar er Kristján að ráðstafa upp á sitt einsdæmi þúsund milljarða verðmætum til útgerða, sem öðluðust veiðireynslu með því að moka upp makríl í eigin verksmiðjur undanfarin 11 ár. Aðrir hafa ekki fengið að byggja upp aflareynslu en þeir sem eiga verksmiðjurnar. Og hvernig er þessi tilfærsla réttlætt? Jú það er hægt að rekja lið fyrir lið.

Í fyrsta lagi fara menn í mál við ríkið sem þeir vinna á öllum dómstigum. Þannig var „Makríldómurinn“ notaður til að réttlæta kvótasetningu á makríl því klifað var á þeirri ógn, að dómurinn hafi skapað ríkinu milljarða skaðabótaábyrgð! Sem er náttúrulega ekkert nema þvæla því eitt er að ríkið hafi ekki farið að lögum þegar veiðifyrirkomulag var ákveðið og annað er hvernig menn ætla að sanna meintan skaða.

Með makríldóminn í höndunum er eftirleikurinn auðveldur. Munum að  Kristján Þór er í vinnu hjá Binna svo hann verður að setja upp leikrit svo þetta vinstri sinnaða öfundar-lið láti blekkjast!

  1. Skipa hóp lögfræðinga og biðja þá að fara yfir 4 valkosti vegna makríldómsins. (Með því er hægt að kæfa allar gagnrýnisraddir um að þetta sé fyrirframpantað lögfræðiálit eins og þegar hann félkk Hagfræðistofnun Háskólans til að réttlæta ákvörðunina um hvalveiðar til 5 ára!)
  2. Þegar lögfræðiálitið liggur fyrir þá er tekið fram lagafrumvarp, sem skrifað var af Binna í Vinnslustöðinni og það lagt fram í ríkisstjórn til samþykktar og á samráðsgátt til málamynda!
  3. Síðasti þáttur leikritsins er svo samþykkt Alþingis (sem líka er bara sýndarmennska því Alþingi samþykkir alltaf það sem ríkisstjórnin leggur fram. Annars væru hér stjórnarslit í hvert skipti sem alþingi hlýddi ekki fyrirskipun ráðherra.)

Núna er málið klappað og klárt. Makrílkvótinn verður aldrei boðinn upp en menn sem fá kvóta mega braska með hann að vild. Þetta mun örugglega þýða mikla fækkun í flota smábáta þar sem úthald til makrílveiða er dýrt og göngumynstrið óáreiðanlegt. Þjóðhagsleg áhrif þessarar ákvörðunar verða neikvæð en það verður gert lítið úr því og menn munu bulla um hið dýrðlega fiskveiðistjórnarkerfi sem skilar milljarða hagnaði á hverju ári þó sá hagnaður renni ekki til þjóðarinnar fyrir afnotarétt af auðlindinni heldur í vasa kvótaeigenda og barna þeirra.

 

 


Bloggfærslur 22. mars 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband