Rumpulýður

Á þingi sitja sextán grey
Sjálfstæðis í flokki
Sitt á boða brutu fley
og Birgir enn í sjokki

Glitni átti ágjarnt lið
í augum hafði glýju
Ávaxta réð ekki við
Illugi, Sjóð 9

Skarð er fyrir skildi fleinn
úr skaftinu er hrokkinn
Grandalaus má Gulli einn
gjalda fyrir flokkinn

Aðeins sá sem eitthvað á
er þeim einhvers virði
Blöndal lúinn leita má
að lausu fé með hirði

Á fjórða ári flokkurinn
fann að lokum spyrnu
er Ólöf lætur lykil sinn
í lófa Hönnu Birnu


mbl.is Engin lausn að banna verðtryggingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Mannstu máski loforð Hönnu

Manstu hennar ellihvörf

Teflon mikið þeirri á pönnu

gleymst þar þrjátíu þúsund störf

 

Manstu orðin gamla Grímsa

Mannstu ræðu upp þann ref

Gleymdist bókfærð færslan ýmsa

Lánaskuldir..SP-Kef.

 

Grátt er gaman Hallur bitur

Hægri kroppar gullin skjór

Verra er að vinstri situr

Ökkladjúpt í orða-flór

 

Herra minn hér lýkur máli

grátt þig lék víst vinstra grín

Nú sverfur víst að potta-stáli

þá bylting étur börnin sín.

Óskar Guðmundsson, 22.2.2013 kl. 19:27

2 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Takk fyrir þetta Óskar.  Endilega haltu áfram. Æfingin skapar meistarann og allt það.  Kjarnyrt gagnrýni, meitluð í 4 línur er orft mun áhrifaríkari en 1000 manna mótmæli.

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 22.2.2013 kl. 19:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband