Smásöluverzlun í höndum ræningja

Mikill blekkingarleikur er nú í gangi að telja neytendum trú um að hér ríki einhver samkeppni í verslun og viðskiptum. Margir taka þátt og margir ganga ansi langt eins og til dæmis ASÍ, samkeppniseftirlitið og svo náttúrulega eigendur þeirra smásölurisa sem leyft hefur verið að skipta kökunni á milli sín.

Þegar Arion Banka var leyft að selja Hagkaup-Bónus til kjölfestufjárfestanna sem auðguðust með því að taka snúning á Húsasmiðjunni, þá varð ljóst að neytendur yrðu látnir borga fyrir þau viðskipti með óhóflegri hækkun á matvöru.  Þetta hefur gengið eftir. Verðlag í Bónus hefur hækkað um 100% frá því að keðjan var sett á markað og eigendurnir hafa makað krókinn á einokunarstöðu fyrirtækisins.  Þetta gerist af því hér ríkir engin samkeppni. Bónus ræður verðlagningunni og allir hinir fylgja á eftir.  Og af því Bónus er fyrirtæki á markaði og þarf að skila eigendum sínum ríkulegum arði þá græða allir hinir líka. Þetta sést á þessu línuriti.  Iceland var selt um áramótin síðustu og sameinað okurfyrirtækinu 10-11 og eftir þann gjörning hefur verðlag stigið þráðbeint upp á við á vörum sem ekki eru í vörukörfu ASÍ.  Eins er það með Krónuna og Nóatún.  Þar hefur verðlag elt allar hækkanir í Bónus óháð gæðum vörunnar.

Eina matvöruverslunin sem reynir að halda verðlagi í skefjum er Víðir og kannski Kostur.  En á meðan heimskur almúginn heldur áfram að láta traðka á sér og versla við ræningjalýðinn í Bónus-Samkaupum þá munum við sitja uppi með þessa einokun á smásölumarkaði í boði Samkeppniseftirlitsins og Alþingis.  En þetta þarf ekki að vera svona.  Jóhannes Jónsson breytti þessu hér áður.  Einhver annar getur gert það aftur


mbl.is Verð breyttist minnst hjá Nettó og Víði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband