Samfélagsábyrgð verktaka

Ekki ætla ég að varpa sök á arkitektana sem teiknuðu þær byggingar sem helst eru gagnrýndar fyrir smekkleysi og metnaðarleysi og sem skipta svo miklu máli fyrir ásýnd Lækjargötunnar. Sökin er náttúrulega fyrst og fremst skipulagsyfirvalda, borgarstjórnarmeirihlutans og svo eiganda lóðanna,  sem oftast eru braskarar í leit að auðfengnum gróða.

Það er til þeirra sem á að tala en ekki drekkja gagnrýninni í óþolið sem forsætisráðherrann veldur ákveðnum hópum í samfélaginu og sem vill svo til að eru líka háværastir á samfélagsmiðlunum.

Krafan er að skipulagsyfirvöld taki málið upp og semji við lóðarhafa um ásættanlegar breytingar varðandi útlit og götuásýnd þessara tveggja byggingaráforma, Hafnartorgs og hótelsins á Íslandsbankareitnum. Arkitektarnir eiga ekki að vera feimnir við að herma eftir gömlum stílum eins og þeim sem til dæmis Guðjón Samúelsson teiknaði sínar byggingar í.  Þessi hræðsla við höfundarrétt arkitekta er óskiljanleg. (Í raun ætti að afnema þann rétt úr löggjöfinni eins og hann hefur verið misnotaður af eigendum og erfingjum höfundarvarins réttar. Vísa til dæma um að heilu byggingarnar hafa verið rifnar vegna ósættis við arkitekta um fyrirhugaðar breytingar)

En ef viðkomandi bregðast ekki við þeirri gagnrýni sem fram hefur komið úr mörgum áttum þá er eina sem hægt er að gera til að bjarga götumyndinni og það er að búa til síki eða kanal frá horninu á Vonarstræti og að Hörpu en þar gæti kanallinn beygt á milli Hörpu og fyrirhugaðs hótels og út í höfnina við varðskipabryggjuna. Svona síki myndi upphefja götumyndina og draga úr neikvæðum áhrifum annarra hús þarna líka . Svosem eins og Iðuhússins og svarta slyssins við Lækjartorg.

Svo væri upplagt að hanna alvörutorg þar sem Lækjarkanallinn byrjaði á horninu á núverandi Lækjargötu og Vonarstræti. Í miðborginni stendur ekkert torg undir nafni!  Með þessu mætti líka bjarga tjörninni og votlendinu í Vatnsmýrinni.  Í dag er tjörnin ekkert nema fúlipyttur þar sem fátt þrífst nema vargurinn og borgarstjórnin. Sem er líka álitamál hvort þrífist yfirhöfuð.

 


mbl.is Verktakar sýni teikningarnar miklu fyrr
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gat nú verið að svokallaðir jafnaðarmenn verji þennan fúla framsóknarspuna.  Þarna fá þeir kærkomið tækifæri til að viðra andúð sína á vinnandi fólki.  Búnir að sprengja upp lóðaverðið í borginni og klína sökinni á "braskara í leit að auðfengnum gróða".

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 13.1.2016 kl. 09:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband