Ofmat á eigin verkum

Þó sigli áhöfn Ess Eff Ess
Samfylkingunni núna
þrefalt fleiri þarf til þess
en þá sem manna brúna.

Oddný fyrir Árna Pál
engu hafði skilað
því berg frá fólki berst ei mál
ef botnstykkið er bilað.

Núna leiðir Logi Már
leifarnar sem fylgi fékk
þess örlög spunnust, þvert á spár
sem sprungið enda varadekk.

Dreymir um að gera díl
þó dugi ei á varabekk.
Enginn setur undir bíl
ónýtt, sprungið varadekk.

 


mbl.is Logi ætlar að ræða við Katrínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband