Siðblindi dagskrárstjórinn

Alveg er ég kominn með upp í kok hvernig fjölmiðlar hampa Sigmundi Davíð og gera sér mat úr öllu sem þessi hættulegi maður segir og gerir. Þrátt fyrir að allir ættu að vera búnir að átta sig á hvern mann þessi fyrrum forsætisráðherra og prókúruhafi Tortólafélagsins Wintris, hefur að geyma.  Það er enginn vafi í mínum huga að drengurinn er haldinn siðblindu á háu stigi og þess vegna getum við ekki ætlast til að hann hagi sér eins og sæmilegt fólk. Sigmundur lætur allt snúast um sig eins og þessi dæmalausa endursögn MBL af fésbókarfærslu þingdólgsins sýnir.  Lilja Alfreðsdóttir fór fínt í það þegar hún biðlaði til fjölmiðla og almennings að veita Klausturdónunum ekki dagskrárvald. Með því átti hún við, að útséð væri um að hægt væri að koma vitinu fyrir þetta fólk sem enga iðrun kynni og brygðist við umvöndunum eins og árásum. Með því að flytja fréttir eins og þessa er Mbl.is að veita Sigmundi Davíð dagskrárvald yfir umræðunni þvert á varnaðarorð eins af þolendum kynferðisofbeldismanna Miðflokksins.

Ef þingið ræður ekki yfir tækjum til að taka á eigin stjórnmálamenningu þá eigum við ekki að þurfa að þola þessa farsakenndu umræðu á vegum fjölmiðlanna.

Almenningur á rétt á að gleyma...Sigmundi Davíð


mbl.is Segir ekkert hafa sært sig eins mikið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband