Megi ólukkan elta þá.

Nú hefur níðingsverkið verið handsalað. Og grafar-rónni endanlega raskað vegna græðgi og aumingjaskapar þeirra, sem að þessu verkefni hafa komið. Þar á ég fyrst og fremst við eigendur lóðarinnar annars vegar og hins vegar borgar-apparatið sem leyfði þessa óhæfu. En skömmin er fleiri.  Til að mynda leikur fornleifafræðingurinn Vala Garðarsdóttir stórt hlutverk í blekkingarleiknum varðandi það að Fógetagarðurinn og Landsímareiturinn séu tvö aðskilin svæði. Þetta er rakalaus þvættingur því hinn forni kirkjugarður náði yfir allt svæðið þó seinna hafi verið leyft að byggja á þeim reit sem nú heitir Landsímareiturinn.  Þegar vísindamenn láta múta sér til að breyta almenningsáliti þá er verið að rýra allt vísindastarf og Háskólastarf í landinu og það hlýtur að kalla á aðgerðir. Meira um það síðar.

Og hvað er með þennan verktaka? Nýtur hann endalauss trausts þrátt fyrir gölluð og ónýt verk út um allt? [Orkuveituhúsið og Kreppuhöllin!] 

Nú þarf að reisa níðstöng og leggja bölvanir á allt þetta lið. Megi þeir aldrei þrífast og óhöpp þá elta svo lengi sem land byggist á hinum forna legstað Reykjavíkur.

Skal bölvunin einnig ná til allra þeirra sem í framtíðinni dvelja á fyrirhuguðu hóteli með þeim afleiðingum að lögsóknir og málaferli geri eigendur og leigutaka alla gjaldþrota.


mbl.is Framkvæmdir á fullt á Landsímareit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Tek fastlega undir þetta mál með þér Jóhannes sem og bölbænir til handa þeim sem þarna vilja fremja ódæði.  Ég gekk þarna oft um sem krakki með mömmu og þá vöktu þessi stóru tré fyrst athygli, en stór tré voru ekki mörg í Reykjavík á þessum tíma en svo voru það leiðin og mamma sagði okkur Andreu systir ágrip af sögu þessa garðs, og þarna áttum við að vera prúð.

Hrólfur Þ Hraundal, 7.1.2019 kl. 21:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband