Rannsóknarnefnd samgönguslysa

Ég er ekki viss um að þær breytingar sem gerðar voru á síðasta Alþingi varðandi stofnun Samgöngustofu og sameiningu þriggja slysarannsóknanefnda í eina, hafi verið gáfuleg ráðstöfun.  Einkum þessi pólitíska skipun nefndarinnar.  Það getur verið að einhver hagræðing náist með þessum breytingum en það er á kostnað sérhæfingar og fagmennsku og þess vegna ekki góð stjórnsýsla. Það er ekki margt sameiginlegt með flugslysum, sjóslysum eða bílslysum.  Þess vegna er það óskiljanlegt að fela sömu 7 manneskjum að rannsaka þessi ólíku samgönguslys.  Skiptir engu þótt þau hafi sér til aðstoðar starfsmenn með sérþekkingu.  Til að mynda er enginn nefndarmaður skipstjórnarmenntaður.  Þetta hlýtur að skrifast á vanþekkingu ráðherrans sem er fyrst og fremst flokkspólitískur bittlingaúthlutari en ekki fagráðherra.

Svo er það Samgöngustofa.  Hvernig á Samgöngustofa  að vera stjórnvöldum til ráðgjafar varðandi verkfræðislysið í Landeyjarhöfn?  Þegar haft er í huga að forstjóri Samgöngustofu er bullandi vanhæfur, verandi fyrrum forstjóri Siglingastofnunar og þar með sá aðili sem stærsta ábyrgð ber á Landeyjarhafnaklúðrinu. 

Þessi 4 óhöpp sem hafa orðið við innsiglinguna í Landeyjarhöfn virðast ekki hafa valdið neinum áhyggjum hjá ráðamönnum.  Samt segir í lögum um Rannsóknarnefnd samgönguslysa:

"Markmið laganna er að fækka slysum og auka öryggi í samgöngum með því að efla og bæta slysarannsóknir. Rannsókn samkvæmt lögunum skal eingöngu miða að því að leiða í ljós orsakir samgönguslysa og samgönguatvika, en ekki að skipta sök eða ábyrgð, með það að markmiði að draga úr hættu á sams konar slysum og atvikum og afleiðingum sambærilegra slysa segir í fyrstu grein frumvarpsins. Er hún sambærileg grein sama efnis og í gildandi lögum um rannsóknir flugslysa, sjóslysa og umferðarslysa nema orðalagi er breytt þar sem hún nær yfir öll slys í samgöngum. "

Þess vegna spyr ég:  Er Rannsóknarnefndin að bíða eftir mannskæðu sjóslysi í Landeyjarhöfn áður en hún framfylgir lögunum sem henni ber að starfa eftir? Eða fór þessi málsgrein fram hjá nefndarmönnum?

"með það að markmiði að draga úr hættu á sams konar slysum og atvikum og afleiðingum sambærilegra slysa"

Þessi höfn er verkfræðilegur óskapnaður og úr því þarf að bæta.  Þangað til ber yfirvöldum að takmarka siglingar við beztu aðstæður.  Annað er ekki forsvaranlegt.


mbl.is Herjólfur snerist í innsiglingunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnarandstaðan eltir brauðmola

Það stóð greinilega aldrei til að hætta við desemberuppbótina.  Hún var bara agnið sem ginnti stjórnarandstöðuna til að klára fjárlögin fyrir jól.  En um leið geta þau haldið andlitinu.  Eru þá ekki allir sáttir?

Dekrað við fyllibyttur og dópista

Það er eitthvað mjög brogað við þjóðfélag sem veitir fyllibyttum og dópistum fría læknismeðferð meðan níðst er á raunverulega veiku fólki.  Eða hvers eiga krabbameinssjúkir að gjalda eða hjartveikir eða geðveikir eða bara sjúk gamalmenni?  Af hverju er hlutur sjúklinga í lyfjakostnaði þyngdur á meðan SÁÁ malar gull á þátttöku ríkisins í sjúkrakostnaði á Vogi.  Sjúkrakostnaði sem er á gráu svæði, því deila má um hvort alkahólismi er sjúkdómur.  Ég tel svo ekki vera.  Ég tel að hér sé um ofnæmi að ræða en ekki sjúkdóm.  Og ég tel að ríkið eigi að endurskoða þátttöku í rekstri sjálfseignarfélagsins SÁÁ.  Breyta ætti Vogi í greiningarstöð þar sem fyllibyttur og dópistar gætu komið í greiningu og viðeigandi afeitrun og fræðslu.  Þetta mætti  vera niðurgreitt en aðeins standa til boða í eitt skipti fyrir hvern einstakling.

Í dag er Vogur rekin eins og verksmiðja. Sjúklingaveltan er það sem gildir.  Og reikningurinn sendur til ríkissjóðs.  Ekki er spurt um árangur.  Sumir sjúklingarnir hafa komið á Vog árlega í mörg ár, sumir oft á ári.  Enginn árangur, enginn bati.  Og hin augljósa skýring er, að alkahólismi er ekki sjúkdómur.  Það er ekki hægt að lækna alkahólisma.

Ef ég hef rétt fyrir mér að, alkahólismi sé ofnæmi, þá meikar það sans.  Þá virkar áfengi eins og eitur á taugakerfið og veldur öllum þeim einkennum sem alkahólistar þekkja.  En af hverju þá þessi sjúkdómsvæðing alkahólismans?  Er verið að hugsa um velferð alkahólistans eða velferð iðnaðarins?  Svari hver fyrir sig.  En tölurnar tala. Alkaiðnaðurinn er orðinn að öflugri starfsgrein og hefur komið sér upp öflugri áróðursmaskínu til að tryggja fjárframlög frá ríkinu.

Þetta er ekki main stream skoðun.  Ég geri mér grein fyrir því en það verður einhver að segja þetta.  Það eru þúsundir manna sem hafa hætt að drekka áfengi og losnað við ofnæmiseinkennin við það eitt.   En það eru samt fleiri sem hafa trúað á sjúkdómskenninguna og goldið fyrir það með lífi sínu.  


Að kunna að búa til sjónvarp

Þegar ég gagnrýni yfirstjórn RÚV fyrir bruðl og yfirmönnun sjónvarpshlutans þá er ég að miða við hvernig einkastöðvarnar N4 og ÍNN gera hlutina.  Tökum sem dæmi "Landann" hjá RÚV og þátt Hildu Jönu Gísladóttur, "Á flakki frá Siglufirði til Bakkafjarðar"  Að Landanum koma 14 manns meðan 3 geta gert jafn góðan eða betri þátt á Akureyri!  Er þetta ekki eitthvað sem yfirstjórn RÚV þarf að endurskoða?  Og til hvers að hafa ritstjóra í Landanum?  Er ekki ritstjóri á hærri launum?  Og til hvers er fréttastjóri RÚV titlaður sem framkvæmdastjóri Landans?  Fær hann aukalega borgað fyrir þann titil?

5 milljarða rekstrarkostnaður RÚV er útúr öllu korti.  En ef bruðlið og sporslurnar eru almennt á pari við það sem gerist í framleiðslu Landans þá er ekki von að  endar nái saman.  Og til hvers sótti Páll Magnússon það svona fast að gera stofnunina að opinberu hlutafélagi?  Var það til að ekki væri hægt að hafa eftirlit með rekstrinum?  Ekki hægt að láta Ríkisendurskoðun gera úttekt?

Ég vil að það verði gerð heildarendurskoðun á bókhaldi RÚV og farið nákvæmlega yfir allar ákvarðanir sem hafa haft fjárútlát í för með sér fyrir stofnunina umfram það sem eðlilegt má kallast.  Kæmi mér ekki á óvart þótt einhverjir hafi makað krókinn þarna innanhúss með vitund yfirstjórnar.  Þetta þarf allt að rannsaka af óháðum endurskoðendum.


Stöndum vörð um DV

Nú standa öll spjót á ritstjórum DV fyrir gagnrýna fréttamennsku undanfarinna ára.  Peningamafían ætlar sér að þagga niður í útgáfu blaðsins í gegnum dómsstóla.  Þeir dómar sem þegar hafa fallið í meiðyrðamálum gegn Reyni, Inga Frey og Jóni Trausta gefa tóninn.  Þess vegna þurfa allir sem láta sig gagnrýna þjóðfélagsumfjöllun, einhverju skipta að rísa upp gegn þessum þöggunartilburðum.  Með því fyrst og fremst að styrkja útgáfuna fjárhagslega en líka með því að taka undir það fréttamat sem DV byggir á.  Netáskrift kostar aðeins 790 krónur á mánuði og menn þurfa ekki einu sinni að lesa blaðið!

Páll Magnússon látinn reka sjálfan sig!

Greinilega sama aðferð viðhöfð að losna við Pál og notuð var til að losna við Björn Zoega.  Þ.e. þeim var gert að segja upp sjálfviljugum.  Þetta verður að teljast jákvætt fyrir okkur sem höfum gagnrýnt sleitulaust á annað ár þá ógnarstjórn sem ríkt hefur á RÚV undir óstjórn Pál.

Nú bíður nýs útvarpsstjóra að afturkalla hreinsanir á Rás 1 og hefja niðurskurð á Rás 2 og sjónvarpsútsendingum.  Gott hefði verið ef Páll hefði nú rekið Skarphéðinn dagskrárstjóra en það bíður þá bara líka nýs útvarpsstjóra.


Fagleg fram í fingurgóma

alver_i_helguvik2.jpgEn það sakar ekki að forstjóri Landvirkjunar viti hver vilji ráðherrans er.  Kannski leyfir hagkvæmni nýrrar Þjórsárvirkjunar, nægilegan afslátt á raforkuverði, svo að ráðherrann þurfi ekki að reka Hörð Arnarson fyrir óhlýðni...Eða til hvers var Orkustofnun að heimila 220 kílóvatta Suðurlínu?
mbl.is Ekki búið að slá Helguvík af
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leggjum niður ríkissjónvarpið

frans_pafi_2.jpgÍ dag er ekkert sem réttlætir að ríkið reki sjónvarpsstarfssemi.  Einkastöðvar hafa nú þegar tekið yfir menningar og stjórnmálaumræðuna og þau rök að dreifikerfi RÚV sé það eina sem sinni öllum íbúum landsins gilda ekki lengur.  Með sjónvarpi Símans og Sjónvarpsþjónustu Vodafone, geta allir landsmenn tengst stafrænni dreifingu sjónvarpsefnis og gamaldags VHF sendar RÚV heyra sögunni til.  Enda er það sjónvarpshluti stofnunarinnar sem liggur helst undir ámæli fyrir að sinna ekki hlutverki sínu.

En þetta skilja ekki yfirmenn stofnunarinnar.  Þeir skera niður á Rás 1 , vegna þess að þeir reka fyrirtækið eins og auglýsingasölufyrirtæki.  Rás 1 er ekki  auglýsingavæn útvarpsstöð.  Þess vegna má hún mæta afgangi.  Og þessi niðurskurður hefur verið lengi í bígerð þvert á það sem kjáninn Magnús Einarsson segir.  Nægir að vísa til uppsagnar Margrétar Marteinsdóttur síðsumars og því þegar hætt var við að ráða dagskrárstjóra í hennar stað.

Það dugir ekki lengur að áfellast þá sem gagnrýna stjórn Páls Magnússonar.  Páll ber ábyrgð á því uppnámi sem ríkir vegna þess hvernig komið er fyrir RÚV og því að engin framtíðarsýn er fyrir áframhaldandi rekstri þessa fyrrum óskabarns þjóðarinnar.

Eftir því sem línur skýrast varðandi stöðu þjóðarbúsins þá er það morgunljóst að framtíð Rásar 1 er bezt tryggð með því að stofna nýtt fyrirtæki um rekstur Rásar1, Þjóðleikhússins og Symfóníunnar.  Leifarnar af RÚV má gjarnan einkavæða. Fréttastofuna þar með.  Rás 1 er betur komin án manna sem misnota aðstöðu sína í pólitískum tilgangi.  Ef menn vilja að Rás 1 sinni fréttamennsku þá fer bezt á því að byggja upp trausta fréttastofu frá grunni.


mbl.is Forkastanleg aðför að þjóðarmiðli Íslendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vaxtastefna Seðlabankans dregur úr velferð

greed-money.jpgÁ Íslandi eru áttfalt hærri vextir en í nágrannalöndum okkar.  Á Íslandi eru líka verðtryggð lán sem til viðbótar við verðtryggingu bera áttfalt hærri vexti en annars staðar tíðkast! 

Hvernig getur það dregið úr velferð að dregið sé úr seðlaprentun bankanna og þar með dregið stórlega úr verðbólguhvatanum?  Því verðtryggingarútreikningar eru ekkert annað en verðbólguhvati.  Verðbólguþátturinn er svo hin raunverulega seðlaprentun.  Gefur bönkum tækifæri til að auka fé í umferð sem þessu vaxtaokri nemur.

Hér þarf að nema lög um Seðlabanka úr gildi.  Setja gengið fast og færa vexti niður í einhverja tölu sem glóra er í.  Hætta að bjóða fólki upp á afleiður í formi íbúðalána er náttúrulega löngu tímabært réttlætismál.  Það á ekki einu sinni að þurfa að ræða það neitt sérstaklega.  Bara gera það.


mbl.is Bann við verðtryggingu minnkar val
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vilja selja mömmu sína

magma_kaupir_hs_orku3.jpgSjálfstæðismenn eru skrítnar skepnur. Þeirra pólitík snýst um hagsmuni en ekki hvaða hagsmuni sem er. Þeir víla ekki fyrir sér, að skerða almannahagsmuni í þágu sérhagsmuna.  Einkavæðing opinberrar þjónustu er dæmi um þennan séríslenzka græðgishugsunarhátt spillingastjórnmálamanna.  Því hvað annað er hægt að kalla þetta?  Í hugum allra annarra eru hita og orkuveitur heilagar mjólkurkýr sem aldrei má af hendi láta. Rökin eru augljós.  Þetta eru fyrirtæki sem eru byggð upp á kostnað samfélagsins.  Fyrirtæki sem nýta sameiginlega auðlind án þess að borga fullt verð fyrir nýtinguna gegn því að sjá okkur eigendunum fyrir ódýru rafmagni og heitu vatni. Og ef einhver arður myndaðist þá var löngum sátt um ráðstöfun hans, öllum til hagsbóta.......

Um þessa opinberu stefnu ríkti full sátt fram að græðgisvæðingu Orkuveitunnar og Hitaveitu Suðurnesja. 

Og þar sem aðförin að Orkuveitunni var stöðvuð urðu menn að láta sér Hitaveitu Suðurnesja duga að sinni. Þar auðveldaði uppskipti fyrirtækisins áformin.  Því menn gleypa ekki fíl í einum munnbita.  Ekki einu sinni íslenzkir útrásarvíkingar!. Besti bitinn fyrst og síðan er hreinsað af diskinum.  HS Orka fyrst,  HS Veitur núna.  Og hver skyldi ástæðan vera?  Jú menn ætla að sameina HS Orku og HS Veitur undir sama eða tengt eignarhald og það verða ekki Lífeyrissjóðirnir sem ætla að eiga þetta fyrirtæki í framtíðinni.  Nei þetta fellur nákvæmlega að formúlunni um arðgreiðslufélag og ég spái því að það sé framtíðarsýn Heiðars Más, sem virðist primus mótor í öllu þessu plotti og hann á góða bandamenn í Böðvari Jónssyni og Ásgeiri Margeirssyni, forstjóra HS Orku.

En þetta á ekki að vera einkamál Suðurnesjamanna. Það á ekki að vera hægt að þröngva skuldsettum sveitarfélögum til að selja frá sér grunnþjónustur á borð við orku og vatnsveitur.  Það er orðið tímabært að setja löggjöf sem bannar það um alla framtíð.  Við höfum því miður brennt okkur á því hvernig fjárplógsmenn hafa leikið Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja.  Orkuveita Reykjavíkur er tæknilega gjaldþrota og HS Orka er orðið að einkagróðafyrirtæki sem nú er á fullu að ná undir sig HS Veitum og fullkomna þannig glæpinn.  Með dyggum stuðningi Spillingarstjórnmálamanna Sjálfstæðisflokksins.

Þetta fólk vílar ekki fyrir sér að selja mömmu sína.  Skítt með ömmu, hún er ekki lengur þeirra vandamál.  Amma var seld til sjálfseignastofnana í hjúkrunarþjónustu. Fyrirtækja eins og Eirar, Sunnuhlíðar og nokkurra einkafyrirtæki í eigu dyggra sjálfstæðismanna. Því það er löngu búið að einkavinavæða hluta af heilsugæslunni. Menn tala bara ekki um það.  Það er feimnismál..ennþá.

En nú ætla Sjálfstæðismenn að toppa eigið skítlegt eðli og selja  sjálfa grunnþjónustu samfélagsins!  Þetta verður að stöðva.  Ekki seinna en strax.  Svona gera menn ekki!


mbl.is Vilja selja hlut í HS Veitum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband