Ráðherrar og þingmenn lenda ekki á biðlistum

Þetta fullyrti Ólafur Ólafsson, fyrrum landlæknir til 25 ára. Þýðir lítið fyrir elítuna að ljúga sig út úr því. En þeir munu reyna


RÚV orðið að poppsjónvarpi

Meiri djöfuls lágkúran sem ríkismiðillinn býður uppá.

Óskalög Þjóðarinnar

Stúdio A

Geðveik Jól

og svo er að renna upp söngvakeppnin með öllum sínum endurtekningum og upprifjunum.

Allt efni sem gæti alveg eins tilheyrt útvarpi eins og sjónvarpi. En hvert skyldi áhorfið vera?  Það væri fróðlegt að vita.


Netfrelsi

Níð og róg og neikvæð orð
á netið setur
lastari sem lyklaborð
lamið getur


Misheppnaður símahrekkur

Logi Bergmann er stríðinn með afbrigðum. En nýjasti hrekkurinn missir þó algerlega marks. Því karakterinn Kenneth Máni er ekkert fyndinn. Hann er miklu fremur ósmekklegur. Og ástæðan er sú að það er til fólk eins og karakterinn er að herma eftir. Fólk sem talar samhengislaust og hefur gaman af að hringja í Útvarp Sögu og tala við Pétur Gunnlaugsson.

Því Pétur er mikið ljúfmenni og hann leyfir öllum að tjá sig.  Líka Kenneth Mána.

„Við vildum athuga hvað hann gæti haldið Pétri Gunnlaugssyni lengi á línunni. Hann nær að teygja sig í átta mínútur, sem er ansi vel gert. Og það er ekkert samhengi í því sem hann er að segja, ekkert samhengi.“ Logi hlær þegar hann leggur áherslu á að samhengisleysið í orðum Kenneths Mána og útskýrir nánar:

„Hann talar meðal annars um að fara í fangelsi og borga sína skuld, en þurfa samt að borga skatta þegar hann kemur út. Þetta er auðvitað stórkostleg lína. Hann spurði líka: „Hvar er skjaldborgin?“ og Pétur var alveg með á því.“

Ef tilgangurinn var að hrekkja Pétur og gera gys að honum þá hefur grínið engan hitt fyrir nema gerandann og opinberar fordóma Björns Thors og Loga Bergmanns sem fannst þetta svona fyndið.  Ef þeir 2 myndu hlusta meir á Útvarp Sögu, en minna á síbyljuna á Bylgjunni þá kannski myndu þeir þroskast aðeins.  Ekki vanþörf á fyrir menn sem eru komnir á fertugs og fimmtugsaldurinn.


Hanna Birna fer huldu höfði

Ekki náðist í Hönnu Birnu við ritun færslunnar

kona_i_burku.jpg


Ráðslagið á RÚV

Alltaf kemur eitthvað nýtt í ljós um ráðslagið í ríkisrekstrinum. Við rekum opinbera Veðurstofu með fleiri hundrað starfsmönnum en svo er það einhver verktaki sem hirðir laun fyrir að birta spá ríkisveðurstofunnar í ríkisfjölmiðlinum!

Hvers vegna er ekki einhver vaktmaður á Veðurstofu Íslands látinn segja fréttir af veðri?  Þarna er verið að misfara með fé. Til Veðurstofunnar er ráðstafað tæpum 1500 milljónum á þessu ári. En á móti koma einhverjar sértekjur. En greinilega ekki fyrir þjónustu við RÚV. Þær sértekjur fær einhver annar.

Þarna er bix sem þarf að laga.  Engin ástæða til að kaupa veðurfréttaþjónustu af einkahlutafélagi.  Bendi á að ítarlegar upplýsingar um veður og færð eru sífellt uppfærðar á ótal miðlum á netinu og túlkaðar af reyndum veðurfræðingum eins og Trausta Jónssyni til dæmis.

 


Og svo bar til að Fátækrahjálp lét skrásetja alla landsmenn..

Þetta verða eftirmæli ríkisstjórnar ríka fólksins. Það þarf ekki einhvern fokking frelsara til að skrifa guðspjall.  Tilefnin gerast í nútímanum.


Er búið að útiloka fjárdrátt?

RÚV er búið að eyða sem svarar 40 þúsund milljónum síðastliðin 8 ár. Þetta samsvarar 5 þúsund milljónum  á ári, 600 milljónum á mánuði og 20 milljónum á dag. 

Er bókhaldið 100% rétt?  Ég minni á að þar sem uppvíst hefur verið um fjárdrátt var alltaf talið óhugsandi að slíkt gæti átt sér stað.  En dæmin sanna að þetta viðgekkst miklu víðar en okkur gat órað fyrir. Landsíminn, Sendiráðið og núna nýjast VMA. Samt var veltan margfalt minni og því áhættan eða freistingin miklu meiri.

En almenningur fær aldrei að skoða bókhald ríkisfyrirtækja. Almenningur á bara að treysta KPMG og Deloitte..og borga. Líka fjárdráttinn samanber Landsímann, meðan fyrrverandi forstjórar lifa í makindum á verðtryggðum lífeyri.

Það þarf að gera hreint hjá RÚV.  Opna bókhaldið algerlega.  Líka sjóðsbókina áratug aftur í tímann. Og kortleggja upp á krónu hvernig útgreiðslum var háttað. Eða setja félagið í þrot. Með gjaldþroti RÚV færi fram svipuð rannsókn á bókhaldinu.

 


Hlutur sjúklinga

Sennilega var heilbrigðiskerfið okkar aldrei gott. Afköstin léleg og kostnaðurinn mikill. Ástæðan einfaldlega rekstrarfyrirkomulagið. Núverandi launadeila lækna mun rústa þessu kerfi endanlega og undir það eiga ráðamenn að búa sig. Læknar sætta sig ekki við að starfa við óviðunandi aðstæður. Léleg laun og óhóflegt vinnuálag.

Læknar geta nefnilega ákveðið sjálfir sinn taxta.  Alveg eins og iðnaðarmenn og lögfræðingar og sendibílstjórar. Launadeila eins og þessi er tímaskekkja. Aðkoma ríkisins á einfaldlega að snúast um hver kostnaður sjúklinga eigi að vera en ekki hver laun lækna eigi að vera.


mbl.is Enn fundað í læknadeilum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vantraust á þingflokk Sjálfstæðismanna

Stóra frétt dagsins er að formaður flokksins treystir ekki óbreyttum þingmönnum flokksins fyrir ráðherraembætti. Að leita út fyrir raðir þingmanna í vali á ráðherra staðfestir þetta svo og sá vandræðalegi dráttur sem varð á tilnefningunni.

Þótt Ólöf Nordal sé fyrrum þingmaður og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, þá var hún búin að draga sig út úr pólitík. Þess vegna lít ég á hana sem óháðan utanþings ráðherra og þess vegna er ég tiltölulega ánægður með þessa tilhögun. 

Ég er líka ánægður með að staða Bjarna hefur veikst við þennan vandræðagang. Styrkur flokka hefur alltaf mælst í því hversu þingflokkar þeirra eru samstíga.  Hætt er við að samstaða þeirra muni riðlast í kjölfar þessa vals á ráðherra. Varla ganga Pétur Blöndal eða Ragnheiður sátt til verka í framtíðinni. Það er alltaf sárt að vera veginn og léttvægur fundinn. Sérstaklega af samherjum. Bjarni mun brotna í þeim hamagangi sem er fyrirsjáanlegur í Valhöll og það er maklegt. 

En hverjir munu taka við flokki í molum? Þótt einhverjir kunni að halda að Ólöf muni snúa aftur og verða varaformaður Sjálfstæðisflokksins á næsta landsfundi þá er ég ekki svo viss um það. Ekki á meðan hún gegnir starfi ráðherra í það minnsta.

En Ólöf kemur til með að styrkja ríkisstjórnina. Því hún þarf ekki að lúta flokksræðinu. Vonandi farnast henni vel.  Þjóðin þarfnast þess að traust geti skapast aftur á milli stjórnvaldsins og almennings.


mbl.is Ólöf Nordal nýr innanríkisráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband