12.12.2013 | 13:45
hahahahahah
Telur siðferðilega rétt að merkja ostana
Halló, eru það ekki sölusamtök þessa sama fólks sem sjálft flytur inn grænmeti og selur í lausasölu í Bónus án þess að merkja það sérstaklega???? Hollenskir tómatar í kassa frá sölufélaginu eru svipað og írskt smör í ostaköku frá MS eða pólskt brauð í bakaríinu...Okkur neytendum bregður ekkert við vörusvik. Erum orðin vön 
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.12.2013 | 13:11
Um greiningadeildir og líkanasmiði
12.12.2013 | 13:00
Ljóta vitleysan
|
24 njóti heiðurslauna listamanna |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
12.12.2013 | 11:26
Trompið í ermi Sigmundar Davíðs
Stærstu mistök núverandi ríkisstjórnar voru að falla frá auðlindaskatti á útgerðina án þess að bætur kæmu fyrir. Þetta á almenningur erfitt með að skilja og fyrirgefa. Emda hamra stjórnarandstæðingar á þessum vanhugsuðu aðgerðum ríkisstjórnarinnar hvenær sem færi gefst og þegar fennir í skuldaleiðréttingarsporin þá verður þetta ríkisstjórninni að falli.
Þess vegna verður Sigmundur Davíð að grípa til einhverra aðgerða sem lágmarkar þennan fyrirséða skaða. Í fyrsta lagi þarf að hætta við öll áform um uppboð á aflaheimildum . Í öðru lagi má ekki gera nýtingarsamninga um aflaheimildir og í þriðja lagi verður að fara að drífa í innheimtu hráefnisgjalds. Þetta er slíkt hagsmunamál fyrir ríkissjóð að það jaðrar við landráð að nýta það ekki.
Hráefnisgjald er gjald sem útgerðin greiðir fyrir að veiða fisk.
Bezt er að miða þetta gjald við ákveðið hlutfall af söluverði á uppboðsmarkaði. Það tryggir að alltaf er verið að greiða hæsta mögulega verð fyrir afnotin af þessari sameiginlegu eign þjóðarinnar. 20% er ekki óeðlilegt hlutfall.
Með því að skylda útgerðina til að setja allan afla á markað og aðskilja í eitt skipti fyrir öll veiðar og vinnslu þá skapast meira jafnræði í atvinnugreininni.
Í dag er munurinn á fiskverði allt upp í 40% eftir því hvort útgerðarmaður selur afla á markaði eða selur til eigin vinnslu eða fær í gegnum kvótaleigu til eigin vinnslu.
sjá hér
Miðað við markaðsverð og útgefinn kvóta á þorski gæti hráefnisgjald þeirrar tegundar numið 214.400x260kr/kg=55.7 max20%=11 milljarðar
Og ef við miðum við að þorskur sé þriðjungur af verðmæti upp úr sjó þá erum við að tala um 30 milljarða tekjur fyrir ríkissjóð. Ef við drögum frá þessi sýndarveiðigjöld sem nú eru greidd þá yrði tekjuaukning ríkisins 20 milljarðar
Og þessi gjaldtaka myndi ekki rýra afkomu útgerðarinnar. Og ekki hafa nein áhrif á útflutningsverðmæti. Hins vegar yrði minni hagnaður af vinnslunni og tekjur tekjuhæstu sjómanna myndu minnka því hráefnisgjaldið yrði tekið af óskiptu. En það er bara í góðu lagi. Þeirra tekjur myndu samt hækka að meðaltali því allur afli yrði seldur á markaði.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.12.2013 | 14:42
Ætli Hafró hafi vitað af þessu?
Visir.is birtir frétt af fræðslumyndbandi frá BBC, sem tekið var af veiðum Háhyrninga á Grundarfirði í byrjun árs. Þetta hef ég stundum nefnt að ætti að vera verkefni Hafrannsóknarstofnunar. Að fræðast og fræða aðra. Og í staðinn fyrir að leika sér með hvalahljóð í firðinum sem ég má ekki nefna þá hefði átt að fanga eins og einn morðingja og láta hann smala út úr síldargildrunni í firðinum sem ég má ekki nefna
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.12.2013 | 15:28
Góður dagur - Sparkað í Samfylkinguna
Páll Vilhjálmsson eltihrellir vinstri manna skrifar:
Síðasta ríkisstjórn vinstriflokkanna, sem kennd var við Jóhönnu Sigurðardóttur, reyndi að koma allri þjóðinni á ESB-spena með því að segja Ísland til sveitar hjá Evrópusambandinu. Vinstrimönnum var ítrekað sagt að Ísland myndi borga með sér inn í Evrópusambandið en en þeim fannst það því betra; að borga með sér til að fá styrki er vitanlega himnaríki bótablætara
Þetta finnst mér hraustlega mælt og bjarga deginum
10.12.2013 | 12:04
Perversk viðbrögð Elliða Vignis
Svona sér Elliði, Benedikt Erlingsson fyrir sér og að mér læðist grunur um perverskan hugsunarhátt bæjarstjórans. Eða til hvers að eyða tíma í að fótósjoppa svona mynd?
Annars finnst mér bæjarstjórinn óþarflega hörundsár og ekki honum líkt að reiðast yfir saklausu gríni. Því ef hann væri jafn mikill aðdáandi Benedikts og hann segist vera, þá hefði hann vitað að Benni notar þessa aðferð oft. Hann tekur fólk fyrir og er þá alger tilviljun hver verður fyrir barðinu á leikaranum. Því allt eru þetta innsetningar eða uppistand eða gjörningar leikara. Þeir sem sáu sýningar hans í Borgarnesi geta vitnað um þetta. Bara að mæta í jakkanum sem Kuregev gerði hafði ákveðna merkingu sem fór greinilega fyrir ofan garð og neðan hjá menningarsnauðum bæjarstjóra Vestmannaeyja sem mælir allt í þorskígildum. En list verður ekki metin til þorskígilda og alls ekki menn eins og Benedikt Erlingsson.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.12.2013 | 10:52
Undirferli Björns Inga
Björn Ingi gerir merkilega játningu í nýjustu færslu á bloggi sínu.
Björn Ingi segir: "Um miðjan síðasta áratug var ég í einhver ár fulltrúi annars oddvita ríkisstjórnarinnar í svonefndum ríkisfjármálahópi. Það var mjög leynilegur hópur sem fundaði að sumri þegar veðrið var gott"
Þarna segir maðurinn loks frá því undirferli og baktjaldamakki sem tíðkaðist í stjórnartíð Halldórs Ásgrímssonar og Davíðs Oddssonar. Og nú bíðum við eftir að fá meira að heyra. Hvaða fleiri leynihópar störfuðu á vegum Framsóknarflokksins? Því við hefðum ekki þurft að borga hundruð milljóna fyrir þessar rannsóknarskýrslur um Íbúðalánasjóð og Sparisjóðina ef menn eins Björn Ingi hefðu bara komið hreint fram og upplýst um baktjaldamakkið og helmingaskipti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar. Minni á að dýrasta skýrslan er enn óskrifuð. En það er skýrslan um einkavæðingu Landsbankans og Búnaðarbankans í boði Halldórs og Davíðs. Björn Ingi hefur þar stöðu vitnis svo hann gæti allt eins byrjað að tala!
En hann þarf ekki að sparka í Vigdísi Hauks. Vigdís er margfalt meiri Framsóknarmaður en handlangarar Halldórs Ásgrímssonar allir til samans. Og auðvitað er hann að vega í hnérunn Guðna Ágústssonar með orðum sínum. Því það voru litlir kærleikar með Guðna og Halldóri einsog allir vita
10.12.2013 | 10:24
Bókhalds fiff
Bókhald gefur enga mynd af rekstri fyrirtækja. Þessir nýju bókhaldsstaðlar snúast um að nýta sér skattaglufur og undanskot til að komast hjá eðlilegri skattlagningu.
Og auðvitað er þetta löglegt. Um það efast enginn. En sjávarútvegurinn er ekki að skila til samneyslunnar sanngjörnum hlut af gróðanum. Þar er ég að tala um brúttó gróða. Og ástæðan er einföld. Útgerðin fær hráefnið ókeypis. Hefur meira að segja leyfi til að veðsetja það og leigja það og jafnvel selja án þess að þurfa að greiða eyri fyrir.
Þess vegna á að láta útgerðir borga hráefnisgjald. Og hætta öllum tilraunum til að skattleggja gróðann. Gróðann er hægt að fela á meðan kostnaðurinn er fastur. Hráefnisgjald er ekki skattur. Hráefnisgjald er afgjald. Hráefnisgjald yrði fastur kostnaður.
En umfram allt getur sanngjarnt hráefnisgjald skilað þjóðinni umtalsverðum fjárhæðum í samneysluna án þess að skerða eðlilega afkomu sjávarútvegsins.
Þetta er lykilatriði. Og ef þingmenn þurfa aðstoð við að útfæra þessa hugmynd þá er hægt að finna mig í símaskránni og ég skal glaður hjálpa og mun ekki taka krónu fyrir.
|
Minni hagnaður sjávarútvegsfyrirtækja |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.12.2013 | 09:48
Ógnarstjórn Páls Magnússonar
Alþjóð fékk nasasjón af stjórnlausu æðiskasti Páls Magnússonar í upptöku af fundi starfsmanna þar á bæ. Ekki vildi ég starfa á vinnustað sem væri stjórnað af manni sem ætti við slíka skapbresti að etja. Það andrúm sem skapast undir svona stjórnarháttum má helzt líkja við heimili fyllibyttu þar sem allir tipla á tánum til að valda ekki næsta fylleríi. En nú eru sem sagt starfsmenn RÚV búnir að fá nóg og ætla að hætta að kóa með húsbóndanum. Það er gott fyrsta skref til bata.
En það eru fleiri en Páll sem munu afhjúpast. Starfsmannastjórinn og yfirmaður íþróttadeildar, báðar sérstakir skjólstæðingar Páls, eru nú undir smásjá almennings vegna uppljóstrana fyrrum starfsmanna. Loksins er komin hreyfing á ástand sem hingað til hefur verið í frosti vegna hins alkahólíska ástands sem ríkt hefur innan stofnunarinnar. Þarna þarf greinilega að velta við hverjum steini. Hverjir njóta hlunninda og velvildar umfram aðra og er þar allt upp á borðinu. Borgar til dæmis Kristín Hálfdánardóttir skatt af þeim hlunnindum sem felast í leigulausri búsetu á kostnað RÚV? Þetta þurfum við að fá að vita. 5 milljarða rekstrarkostnaður stenst ekki. Er endurskoðunin í lagi? Eða er hún með sama hætti og endurskoðun bankanna fyrir hrun? Nýs útvarpsstjóra bíða greinilega mörg verkefni áður en allir verða sáttir.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)


