Af gefnu tilefni

Vegna fyrirhugaðrar ráðningar fréttastjóra RÚV, vil ég taka fram að ég hef aldrei hitt næsta fréttastjóra Ríkisútvarpsins. Ég hef ekki heldur talað við hann í síma. Ég þekki hann ekki neitt og þaðan af síður ekið með honum ítrekað í leigubíl.

Virðingarfyllst

 

Björn Ingi Hrafnsson


Bragæfingar II

Framrímað

Skerðir kjörin hægt og hljótt
herðir tök og þegir
Verðir kerfis græða gnótt
gerðir virðulegir

Samrímað

Verndar bófa banka-leynd
það breytist ekki í bráð og reynd
Valdhafarnir hafna greind
með heila á við atóm-eind


Útsvar

Stefán Bogi stóð sig vel
strítt af Helga Seljan
Það sýnir Þóru vinarþel
í þáttinn skyldi velj'ann

Umhleypingar að morgni

Klukkan átta kíkti ég út
hvorfinn allur skítur
hissa kallinn hrökk í kút
"haven" orðinn hvítur

Bragæfingar

 Frumhent

Lengist Simma lyga slóð
lítill er hér friður
Skuldir þegar sliga þjóð
þarf að fella niður

 Hringhent

Lifnar dagur, lýsir nótt
léttist bragur andans
áður magur eflist fljótt
efna hagur landans


Hanna Birna situr enn

Veturseta á valdastól
virðist Hönnu erfið
Hún réð til hjálpar fífl og fól
sem fatta ekki kerfið

Gísli og Þórey þurf 'í raun
í þessu ráðuneyti
að eyða ummerkjum á laun
um eigin tölvuskeyti

DV ekki af sér dró
í einelti þau lagði
En að þeim bara Hanna hló
hristi haus og þagði

Upplýsingar engar gaf
eins og flest við munum
hvort skipt hafi hún sér af
hælisumsóknunum

Embættis óhæfuverk
aldrei fall 'í gleymsku
Orðin þeirra öll ómerk
eigin lýsa heimsku

Um íhald ríkir óeining
öll sín loforð svíkja
og túlka allan ágreining
eins og þjóðin eigi að víkja.

Áfram svona endalaust
eflaust gæti haldið
nema þau fari frá í haust
því fólkið hefur valdið

 


Bjarmalandsför Gunnars Braga

Almennt ríkir fát og flaustur
flestir Úkraínu flýja.
en Gunnar heldur glaður austur
að gamna sér með Deshchytsia

Nú er von að fólkið fagni
framsóknar á bæjunum
Og varaliðið verð'að gagni
vopnað nýju "græjunum"


2 dæmi um lýðskrum

 „Ekki viljum við að gjaldtökuleiðin verði til þess að skapa gjá og togstreitu á milli ferðaþjónustunnar sem atvinnugreinar og almennings í landinu *,“
- Sigurður Ingi Jóhannsson í umræðum á Alþingi

„Það er eitt að huga að þörfinni á uppbyggingu í flutningskerfi raforku og síðan annað hvernig við komum þeirri raforku á framfæri með hagkvæmum hætti og í sátt við náttúru og menn *.“
- Ragnheiður Elín Árnadóttir á kynningarfundi Landsnets

-----------------------------------------------------------------------------------------------

“a dog is not considered a good dog because he is a good barker. a man is not
considered a good man because he is a good talker.”
- Gautama Buddha
-----------------------------------------------------------------------------------------------

* Lýðskrum er það kallað þegar menn segja það sem fólk vill heyra, en meina allt annað.


Snýst ekki um fréttamenn RÚV

Það er þegar ákveðið að skipta út Fréttastjóra RÚV.  Og það er réttmæt ákvörðun af mörgum ástæðum en ekki síst vegna þess að trúverðugleiki fréttastofunnar hefur beðið hnekki á vaktinni hans Óðins.  Og þó ég hafi oft kallað RÚV, ríkisútvarp allra starfsmanna af augljósum tilefnum, þá verða fréttamenn þar að átta sig á því að það skiptir ekki máli hverjum þeir treysta til að stjórna.  Það sem er aðalatriðið, er hverjum útvarpsstjóri treystir til að byggja upp traustið að nýju.  Þetta verða starfsmenn að skilja. Óbreyttir hásetar halda ekki fund niðri í matsal og álykta um hverjir eigi að stjórna vöktum. Það er skipstjórinn sem ræður því.
mbl.is Ótímabært að skipta um fréttastjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Buddha um reiðina

“Holding on to anger is like grasping a hot coal with the intent of throwing it at
someone else; you are the one who gets burned.”
 Gautama Buddha

“You will not be punished for your anger; you will be punished by your anger.”
 Gautama Buddha

“Holding onto anger is like drinking poison and expecting the other person to die.”
 Gautama Buddha

“Anger will never disappear so long as thoughts of resentment are cherished in the
mind.”
 Gautama Buddha

“You will not be punished for your anger, your anger is the punishment.”
 Gautama Buddha

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband