Færsluflokkur: Tækifærisvísur

Heiðarleiki í 4 línum

Á það Mái dró ei dul
dílinn taldi bestan
að áfram yrði Guggan gul
og gerð út fyrir vestan

Ofnotuð orð

Með ólíkindum allt er hér
enginn iðkar trúna
Afvega-leiða ætla mér
umræðuna núna

Spillingar og spunalið
spena ríkis sjúga
Siðblindir þar samanvið
svíkja, stela, ljúga

Standi í lappir Steingrímslið
ef stjórntæk vilja teljast
Hryssan Lilja hamast við
hennar flokksmenn kveljast

Uppi á borði ekkert er
allt er hulið myrkri
sínar skuldir niður sker
skepnan hendi styrkri

Gegnsæir og opnir göngum
grunlausir um þjóðarsvik
þjóðníðingar velta vöngum
varla meir en augnablik

Óþjóðhollir íhaldsmenn
icesave vilja greiða
Svikastjórnin springur senn
sáttir samningsleiða


Minnisvarði um heimsku

Vitstola hér vildu byggja
varða minnis fyrir arð
úr tómum sjóðum skyldi tryggja
tífalt meir en seinna varð

Stjórnar formenn flatir liggja
fyrir skildi er nú skarð
af því þjóðin á að þiggja
Þjófahöll við Ingólfsgarð


Ró og friður

Leikur að (h)ljóði

Iður kreppast hviðum í
hvergi heyrist kliður
Niður gengur gorinn því
góður nú gefst friður

Friður gefst nú góður.því
gorinn gengur niður
Kliður heyrist hvergi. í
hviðum kreppast iður

*sléttubandavísa, hér áður var hv-framburður ekki óalgengur í Skaftafells sýslu austur


"að hræra í innyflum hvers annars"

Ólíkt oftast hafast að
íhald, kjána kæra
Jóka stjórnlynd stundar það
í Steingríms slátr' að hræra

Kliður fór um kattahjörð
kviður snéri niður
friður horfinn, viðbrögð hörð
í hviðum krepptust iður


Inga Lind er draumahind - Kynþokki skiptir máli

Passar fagur rass við flís
á flottri íhalds drottningu
Sú læra þykka lokkadís
leyndi greind af lotningu.

 


Hnútuköst á Alþingi

Háttvirtur og hæstvirtur
hnútuköstin fljúga
Einar K. var atyrtur
en Össur fékk að ljúga

mbl.is Neitar ásökunum um ritskoðun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útlenska hóran eða hið tvöfalda siðgæði

hora.jpg

Á Ingólfstorgi útlenzk hóra
ennþá býður sig
Á Goldfinger þær æra óra
án þess að selja sig


Mannorð

jon_asgeir_0Fífil fegri muna má
meðfram veggjum læðist
Sá sem enga æru á
athyglina hræðist

Eineltið í pólitíkinni

Stjórnmálin óma af eintómu gelti
og einróma samstaða ekki til siðs
Ef að þú vilt ekki lend' í einelti
áttu að þegja og vera til friðs

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband