Færsluflokkur: Limrur
13.1.2019 | 20:55
Dagur um Braggamálið
Þótt Eyþór nú allan sig kreppi
ég aldregi völdunum sleppi.
Óreiðu og svik
ég kalla frávik
og sópa því svo undir teppi
Að hafa mig fólkið er heppið,
þótt hárið sé úfið um greppið.
Ég staulast við staf
því almættið gaf
mér veikindi að breiða yfir teppið
Það hankar mig enginn á austri
öllu þó eytt væri í flaustri
Þeir vita sem nenna
það var Hrólfi að kenna
Og ég var sko ekki á Klaustri
Segir ekki um misferli að ræða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Limrur | Breytt s.d. kl. 22:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.12.2016 | 13:47
RÚV fékk sinn Barrabas!
Á RUV-inu réttlátir menn
rannsaka og dæma í senn.
En úr bófanum Bjarna
er búin til stjarna
Því Barrabas lifir víst enn!
Á Austurvöll skundum því senn
til að heiðra þá Borgun-armenn
sem landinu stjórna
og sjálfum sér fórna
til að öreigar svelti hér enn!
Minntist á endurtalningu í manni ársins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Limrur | Breytt 1.1.2017 kl. 15:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.12.2015 | 15:24
Álitssalar takast á
Ef Egill sinn upphefur vönd
íhaldið reist fær ei rönd
Og Davíð þess geldur
að um pennann hans heldur
útgerðar auðvaldsins hönd
En Egils er álitið falt
því Eyjunni seldi það allt
Þó breyti í boðun
Bingi hans skoðun
á hann þú trúa ei skalt!
Limrur | Breytt 14.1.2016 kl. 00:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.4.2014 | 00:06
Jón Bjarnason í fréttunum
Jón Bjarnason öllum til ama
óverðugan öðlaðist frama
Nú lýgur því kalt
að frelsið sé falt
Og öllum er andskotans sama
(Líka Birni Val!)
Limrur | Breytt s.d. kl. 00:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.4.2014 | 23:51
Sigmundur Keisari
fljótt mynnir á málið með Geira
sem skorti formfestu
og frestaði flestu
Og fékk fyrir Landsdóm að heyra
Limrur | Breytt 10.4.2014 kl. 00:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.8.2013 | 16:32
Rassbaga fyrir Gylfa Ægis
og forherðing þín bara stækki
Er sjálfsmyndin brotin
og rökin öll þrotin
nema talan sem "lækar" þig hækki
Limrur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.5.2013 | 07:06
Ís fyrir alla
Framsókn mun loforðum landa
og leysa úr bráðasta vanda
ís fyrir alla
og hár vax' á skalla
í sáttmála stjórnar mun standa
Of seint er í móinn að malda
menn kusu hér framsókn til valda
það þarf ekki að ræða
að þeir munu græða
sem þurf' ekki á því að halda
Limrur | Breytt s.d. kl. 07:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.4.2013 | 09:30
Hinn mjúki maður
Hættu að væla og vona
Að virði þig Hanna sem kona
En það er sko gallinn
að þú ert ei kallinn
Þess vegna lætur hún svona
Limrur | Breytt 30.5.2013 kl. 23:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.9.2012 | 14:40
Kögunarbarnið
Vond verður Kögunarbarninu
vistin á Norðlenska hjarninu
af skít eiga nóg
og komið í lóg
get' ekki Framsóknarskarninu
Svo auðtrúa engan ég þekki
að orðræða Sigmundar blekki
ég legg þett' á borð
og stend við mín orð
Ef Gunnlaugur stefnir mér ekki.
Limrur | Breytt 30.5.2013 kl. 23:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.11.2011 | 14:44
Limrur um Davíð Þór og Stóru Systur
Sértu af klámhundakyni
og kætist með Davíð Jónssyni
Ei tjáir að neita
ef táli þær beita
með tilboð' í blekkingarskyni
Og þegar María Þrastar
þinn manndóm og kyngetu lastar
ei málsókn skalt hóta
ef konu vilt njóta
því hún bara flengir þig fastar
Limrur | Breytt 31.5.2013 kl. 00:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)