Misheppnaður símahrekkur

Logi Bergmann er stríðinn með afbrigðum. En nýjasti hrekkurinn missir þó algerlega marks. Því karakterinn Kenneth Máni er ekkert fyndinn. Hann er miklu fremur ósmekklegur. Og ástæðan er sú að það er til fólk eins og karakterinn er að herma eftir. Fólk sem talar samhengislaust og hefur gaman af að hringja í Útvarp Sögu og tala við Pétur Gunnlaugsson.

Því Pétur er mikið ljúfmenni og hann leyfir öllum að tjá sig.  Líka Kenneth Mána.

„Við vildum athuga hvað hann gæti haldið Pétri Gunnlaugssyni lengi á línunni. Hann nær að teygja sig í átta mínútur, sem er ansi vel gert. Og það er ekkert samhengi í því sem hann er að segja, ekkert samhengi.“ Logi hlær þegar hann leggur áherslu á að samhengisleysið í orðum Kenneths Mána og útskýrir nánar:

„Hann talar meðal annars um að fara í fangelsi og borga sína skuld, en þurfa samt að borga skatta þegar hann kemur út. Þetta er auðvitað stórkostleg lína. Hann spurði líka: „Hvar er skjaldborgin?“ og Pétur var alveg með á því.“

Ef tilgangurinn var að hrekkja Pétur og gera gys að honum þá hefur grínið engan hitt fyrir nema gerandann og opinberar fordóma Björns Thors og Loga Bergmanns sem fannst þetta svona fyndið.  Ef þeir 2 myndu hlusta meir á Útvarp Sögu, en minna á síbyljuna á Bylgjunni þá kannski myndu þeir þroskast aðeins.  Ekki vanþörf á fyrir menn sem eru komnir á fertugs og fimmtugsaldurinn.


Bloggfærslur 5. desember 2014

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband