13.3.2014 | 22:46
Gunnar Bragi lætur Össur spila með sig
Össur atyrðir Gunnar Braga fyrir að láta Norðmenn plata okkur í makrílviðræðunum og Gunnar stenzt ekki frýjunaryrðin heldur hleypur upp til handa og fóta og kallar sendiherra Norðmanna og ESB á sinn fund og heimtar svör fyrir Össur! Ef þetta er ekki hrekkur ársins hjá Össuri þá allavega verður erfitt að toppa þetta asnastrik utanríkiráðherrans.
Nú sitja örugglega allir ráðamenn í Evrópu og klóra sér í hausnum yfir þessum utanríkisráðherra uppi á Íslandi sem heldur að hann geti beitt embætti sínu til að krefjast upplýsinga um milliríkjasamninga sem Ísland er ekki aðili að. Nú vantar bara lýsingar sjónarvotta á því, hvort hann hafi rifið af sér skóinn og barið honum í borðið í vanmáttugri reiði!
En Össur mun skrifa annað bindi Árs Drekans og tileinka það ríkisstjórn Sigmundar Davíðs. Það verður örugglega ekki síðri lesning en fyrra bindið. Nú loksins eru orð Þorgerðar Katrínar vel við hæfi því þetta eru spennandi tímar þótt þeir hafi ekki verið það þegar þorgerður missti þau útúr sér í miðju hruni!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.3.2014 | 18:27
Makríl málin skýrast
Sigurgeir Þorgeirsson staðfesti í viðtali við Spegilinn kenningu mína, sem ég setti fram í gær um, að fyrirhugaðar veiðar Brims, Samherja og Síldarvinnslunnar í grænlenskri lögsögu hefðu lagst illa í viðsemjendur okkar. Enda voru uppi áætlanir um stjórnlausar gúanó veiðar til að afla veiðireynslu. Nokkuð sem Norðmenn og ESB kannast við af hálfu Íslenzkra útgerðamanna þegar makrílveiðar voru fyrst leyfðar hér á landi. þannig að hér sannast enn og aftur að græðgin verður okkur að falli.
Nú þarf að taka ráðin af Sigurði Inga. reka LÍÚ úr ráðuneytinu og setja þangað fagfólk. Fólk sem útlendingar geta haft samskipti við á faglegum nótum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
13.3.2014 | 15:55
Fanga fetish
Undanfarið hafa birst í fjölmiðlum frásagnir af íslenzkum konum höldnum fangablæti. það skrýtna við það er, að þær vita það ekki sjálfar. Halda að þær stjórnist af hjartahlýju og góðmennsku sem er alger misskilningur.
Önnur þessara kvenna ferðaðist til Afríku til að styðja fótalausan morðingja en hin fór til Amríku að heimsækja ofbeldisfullan ungling í fangelsi. Og tók með sér unglingsdóttur sem hún hefur smitað af þessu blæti sínu.
Hvað okkur varðar um þetta er mér hulið en þessu er troðið ofan í okkur í ítarlegri umfjöllun slúðurfréttadálka og viðtökurnar láta ekki standa á sér. Enda er Íslendingum tamara að velta sér upp úr slúðri en veita stjórnmálamönnum aðhald. Í þannig þjóðfélagi komast ráðamenn upp með nánast hvað sem er.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.3.2014 | 11:34
RÚV er hlutdrægt í ESB áróðrinum
Þrátt fyrir keypta úttekt á hlutlægum fréttaflutningi ríkismiðilsins, blandast engum sem fylgist með fréttum hugur um, að RÚV er bullandi hlutdrægt þegar kemur að áhugamáli fréttastjórans.
Í gær var til dæmis ítarleg umfjöllun í Speglinum um einhverja skoðanakönnun sem er mjög óvenjulegt. Vanalega er látið nægja að segja frá helztu niðurstöðum en þarna var berlega verið að nýta sér aðstöðuna til að koma því ítrekað á framfæri að stuðningur við aðild að ESB færi vaxandi. Það skiptir engu hvað eitthvað fyrirtæki eins og Capacent segir, við sem fylgjumst með fréttum höfum það svo sterklega á tilfinningunni að um hlutdrægan fréttaflutning sé að ræða að það er ekki hægt að hunza það sem einhvern áróður minniháttar spámanna eins og hrokagikkurinn Óðinn Jónsson lét hafa eftir sér.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
13.3.2014 | 11:17
Davíð er Eyland

Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.3.2014 | 11:03
Gerum eins og Heiðar Már segir.
Ráðaleysi íslenskra stjórnmálamanna er algert. Nú á að fleygja stefnunni um bráðabirgðaaðild að evrópska myntsamstarfinu, sem undirbúin hefur verið í Seðlabankanum undanfarin 4 ár og alls óljóst er hvað við tekur.
Án gjaldeyrishafta er krónan ónothæf. Og kostnaðurinn við höftin er álíka mikill og við verðtryggingu krónunnar. Hvorugt er hægt að búa við.
Þess vegna á að skoða í alvöru tilboð Kanadamanna um upptöku dollars eða að taka hér upp Bandaríkjadal einhliða. Auðvelt er að beina útflutningi vestur um haf og við þurfum ekki að stóla eins mikið á EES markaðinn og gert hefur verið. Eins mun Kína opnast í lok árs svo það er líf án ESB. Þótt margir haldi öðru fram
Það eru mörg rök sem styðja þá kenningu að okkur sé betur borgið í samstarfi við Kanada og Bandaríkin heldur en ESB. Ekki bara að það sé friðvænlegra heldur er menningarheimur okkar og Vesturheimsmanna miklu líkari. Við eigum fátt sameiginlegt með keisaraslektinu og kónga og aðalsmanna hyskinu í Evrópu. Og síðast en ekki sízt eigum við vini og skyldfólk í Kanada sem myndu fagna nánara samstarfi og viðskiptatengslum.
Kanada gæti þá verið okkar Akranes. En þekkt er að fólk utan af landi velur frekar að flytja fyrst til Akraness áður en það flytur alveg á höfuðborgarsvæðið.
Hlustum á Heiðar.
13.3.2014 | 10:22
Sjúkir í tilfinningaklám
ESB aðallinn hefur eignað sér málefni hælisleitenda, flóttamanna, mansalsfórnarlamba og útlendra businessmanna. Og nú síðast er grátið yfir örlögum rússneskrar konu sem flúði hingað undan ofbeldisfullum eiginmanni! Og það er ekki að ástæðulausu að þetta fólk eignar sér þessi baráttumál. Því fátt hentar betur lýðskrumurum en höfða til tilfinninga. Og pólitískt séð eru svona mál óspart notuð til að búa til strámenn.
Ekki ætla ég að taka til varna fyrir yfirvöld sem bera hina pólitísku ábyrgð en menn ættu að beina spjótum sínum að kerfinu og lagasetningunni en ekki embættismönnum eða pólitíkusum sem eru að framfylgja lögum og reglum! Ræðum aðildina að Schengen og það fullveldisframsal sem sú pólitíska ákvörðun hafði í för með sér.
Schengen aðildin veldur því að hver sem er kemst inní landið eða svo til. Í stað þess að ef við framfylgdum okkar eigin landamæraeftirlit þá hefðum við í flest öllum tilfellum, sem upp hafa komið á undanförnum árum, getað afstýrt því að þetta fólk hafi fengið landvistarleyfi. Og þar með komið í veg fyrir þá ómannúðlegu meðferð, að vísa fólki fyrirvaralaust úr landi.
Því þetta er ekki mannúðlegt kerfi. En það er ekki vegna mannvonsku Útlendingastofnunar eða embættismann eða lögreglu. Þetta er bara það kerfi sem meðal annars ESB aðallinn ber ábyrgð á!
Þess vegna fordæmi ég tilfinningaklámið og pólitíska upphlaupið og segi við þetta fólk, talið við Alþingismennina og breytið lögunum. En þegið ella.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)