23.1.2016 | 08:38
Ég treysti Sigmundi í skipulagsmálum miðborgarinnar
Ég verð að hrósa Sigmundi fyrir að láta ekki nægja að gagnrýna slæmt skipulag eins og flestir, heldur gerir hann eitthvað í því. Það er ánægjuleg nýbreytni hjá forsætisráðherra íslands. Hvort hann sé að misnota völd sín og ráðstafa fjármunum án heimildar tel ég aukaatriði í þessu máli. Hann er bara að bjarga skipulagsklúðrinu sem Dagur B. var búinn að koma borginni í og það er aðalatriði þessa máls. Ég bíð spenntur eftir útkomunni hjá arkitektinum sem verður fenginn til að gera breytingarnar á þessum byggingum. Og því skal haldið til haga að hér er um samstarf og samkomulag við lóðarhafa að ræða. Það er ekkert offors eins og þegar fulltrúar síðustu ríkisstjórnar vildu taka skipulagsvaldið á Alþingisreitnum af borginni og færa það til Alþingis eða þegar menn í alvöru vilja að ríkið taki sér skipulagsvald yfir öllum innanlandsflugvöllum.
![]() |
Sigmundur vill makaskipti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.1.2016 | 06:44
Auðlindarenta er ónýtt hugtak
Hagfræðingar bjuggu til hugtakið auðlindarenta og reyndu að útfæra það við innheimtu auðlindagjalds af úthlutuðum fiskkvóta. Sú tilraun gekk ekki upp. Samt halda menn áfram að staglast á þessari leið eins og allsherjarlausn á öllum okkar vanda.
Svo eru aðrir sem alltaf klifa á uppboðsleiðinni og telja hana leysa deilurnar um réttlátt afgjald fyrir aðgang að veiðum á sjávarfangi. Þetta er náttúrulega mikil einföldun því kvótasetning snýst fyrst og fremst um aðgangshindranir til að vernda þá sem fyrir eru í atvinnugreinum sem eru kvótasettar. Réttlætið næst ekki með því að fjársterkar útgerðir geti yfirboðið einyrkjana í uppboðum á aflaheimildum. Réttlætið næst með því að ryðja aðgangshindrunum úr vegi til að auka atvinnuþáttökuna.
Þegar búið var að prófa að innheimta veiðigjald samkvæmt módeli sem smíðað var af hagfræðingum upp í HÍ og í ljós kom að það var ónýt aðferð var farin sú leið að innheimta málamyndaskatt. Þessi skattlagning mismunar mönnum og útfærslan er alltof flókin.
Þess vegna hef ég í mörg ár reynt að benda mönnum á einu réttu leiðina við að skattleggja þennan atvinnurekstur og sú leið er bæði einföld og árangursrík en umfram allt sanngjörn og alls ekki íþyngjandi. Já ég er að tala um 2 grundvallarbreytingar á fiskveiðistjórnuninni.
- Framsal verði bannað
- Allur afli verði seldur á markaði
Þegar þessum skilyrðum er fullnægt þá náum við markmiðum um sanngjarnt afgjald með því að innheimta ákveðið sölugjald af hverju seldi kílói og köllum það hráefnisgjald. Þessi prósenta ræðst svo af framlegð viðkomandi tegundar í útflutningsverðinu. Þannig munu kaupendur þurfa að tilgreina hvort um sé að ræða hráefni til sölu innanlands, til útflutnings eða í mjöl og lýsi. Þannig má skattleggja áætlaða framlegð strax. Það þarf ekkert að fara inní bókhald fyrirtækjanna og nota allskonar kúnstir til jöfnunar eins og reynt var að gera með auðlindarentugjaldinu.
Ef við miðum við 25% hráefnisgjald sem yrði greitt af óskiptu aflaverðmæti nota bene, og 250 krónu meðalverð á kíló sem færi til frekari vinnslu innanlands þá erum við að tala um kannski 200 þúsund tonn og það myndi skila ríkissjóði 12.5 milljörðum. Síðan kæmi flokkur 2 sem bæri kannski 30% álag og það væri fiskur til útflutnings ferskur. Þessi fiskur selst alla jafna á hærra verði á markaði svo við erum að tala um kannski 90 krónur x 20 þúsund tonn sem gæfi 1.8 milljarð. Og þá eru eftir síldin, loðnan, makríllinn og kolmunninn. Ef við miðum við 20 milljarða útflutningstekjur af þessum tegundum og tökum bara lágmarksgjald eða 25% þá er þarna um 5 milljarða að ræða. Samanlagt ætti því fiskurinn að skila ríkissjóði 20 milljörðum á ári miðað við þennan lágmarkskvóta sem við erum að veiða. Margir telja óhætt að tvöfada þennan kvóta. Þá erum við að tala um 40 milljarða. Það er raunhæf tala.
Þessi aðferð sem ég er að leggja til er líka sú bezta vegna þess að hún byggir á markaðsforsendum hverju sinni. Og síðast en ekki sízt þá virkar þessi aðferð sem sóknarstýring. Þegar bannað verður að framselja kvóta og komin á virk veiðiskylda þá myndast svigrúm til nýliðunar og eins þegar kvóti verður aukinn og eða útgerðum hætt og kvóta skilað, þá verður þeim kvóta úthlutað að nýju. Þessi leið leiðir heldur ekki af sér neina áhættu fyrir bankakerfið. Það er ekki verið að tala um að innkalla kvóta eða taka hann af þeim sem þegar veiða sinn kvóta sjálfir. Þannig að veðin standa í skipum eins og áður en ekki í óveiddum fiski. En erfingjarnir munu þurfa að fá sér vinnu og kellingarnar þurfa að umbera kallana því kvótabraskið væri úr sögunni.
Sjávarútvegsmál | Breytt 26.1.2016 kl. 09:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)