21.4.2016 | 15:32
Kona, sem kann ekki að segja satt
Kristín segir fregnir af ófaglegum samskiptum ímyndun"
Og hún er yfirritskoðari fjölmiðlafyrirtækis! Afhverju lætur BÍ þetta yfir sig ganga?
21.4.2016 | 15:14
Ásetningur heitir núna mistök!
"BHM gerði í vikunni athugasemdir við auglýsingu sem send var á opin póstlista vísindamanna sem stunda rannsóknir á sjávarspendýrum. Auglýst var eftir tveimur sérfræðingum í ólaunuð sjálfboðastörf við rannsóknir á hegðun hvala. Í auglýsingunni kom fram að auk vísindastarfa væri gert ráð fyrir að starfsmennirnir annist afgreiðslustörf og þrif um borð í hvalaskoðunarbátum fyrirtækisins. Þeir þurfi að vera reiðubúnir að vinna í allt að 14 klukkustundir á dag og fái aðeins fæði og húsnæði fyrir.
Í yfirlýsingu sem Elding sendi frá sér í gær segir að mannleg mistök hafi valdið því að í auglýsingunni hafi komið fram öll tilfallandi störf um borð í bátum fyrirtækisins, Fyrirtækið harmi misskilninginn sem risið hefur vegna málsins og biðst velvirðingar á mistökum sínum. Elding hafi enn fremur svarað fyrirspurnum sem BHM sendi fyrirtækinu um sl. helgi, án þess að fá nokkur viðbrögð."
Það þarf greinilega að uppfæra íslenzku orðabókina. Allt of mörg orð hafa öðlast breytta merkingu í munni siðblindra bjána. Og ekki sízt ef þeir hafa stundað nám í lögfræði við Háskóla Íslands. Hvernig getur það talizt virðingarvert að kalla lygaréttlætingu á einbeittum brotavilja, mistök! Og trúa réttlætingu bjánans, sem ætlaði ranglega að hagnast á samstarfssamningi við Háskólann og sleppa við að greiða lögbundin laun. Auðvitað á strax að rifta þessum samningi við Eldingu og setja þetta fyrirtæki á gátlista. Öðruvísi er ekki hægt að koma í veg fyrir skattsvik og undirboð í spilltu íslenzku atvinnulífi.
![]() |
Virðingavert að fara yfir starfsemina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.4.2016 | 14:01
Vandi að vera giftur
Hafa yfir auð sinn breitt
sem einstaklingar mega
En hjónin eru aðeins eitt
ef þau ekkert eiga
![]() |
Segir frétt Kjarnans alranga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tækifærisvísur | Breytt 22.4.2016 kl. 00:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.4.2016 | 13:50
Carpe Diem! Guðni
Undir feldi sýknt hann sat
sinn að meta haginn.
Var orsök þess að Guðni gat
ekki gripið daginn.
![]() |
Guðni Th.: Fyrsta sem ég sá var Ólafur Ragnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tækifærisvísur | Breytt s.d. kl. 13:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)