22.4.2016 | 16:48
Fimmtíu manna húsfyllir
Hvorki fjölmenn fundahöld
eða friði spilla
þarf nú sá er þráir völd
ef þjóð, um fyr' nær villa
Og staður fyrir fundinn hans
fyrirfram var valinn
svo að færri en fimmtíu manns
fyllt gætu þar salinn.
Í ýkjubúning frétt er færð
ef fundað er á litlum stað
því "húsfyllir" er huglæg stærð
háð því hverjir túlka það.
-------------------------
Magnús Orri engan styggir
eins og þó gat orðið
Á heiðarleika hann ei byggir
er holar sér við borðið
![]() |
Vilja reka heiðarleg stjórnmál |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tækifærisvísur | Breytt s.d. kl. 17:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)