8.4.2016 | 18:05
38-25
Gamla siðspillta Ísland vann þessa lotu á heimavelli. Næstu daga verður leikið á útivelli, þ.e. Austurvelli. Þá verða önnur úrslit.
8.4.2016 | 14:40
Þurfum engin Panamaskjöl
Þeir sem nú fordæma þann upplýsingaleka sem birtist í Panamaskjölunum vita hve málið er eldfimt og hættulegt íslenzkri pólitík og viðskiptum. Þeir binda vonir við að hægt verði að loka fyrir þennan leka með hótunum og ofsóknum í anda Bandaríkjamanna gegn Edward Snowden. En við þurfum ekkert á þessum leka að halda. Allar þessar upplýsingar er að finna hjá Lögmannsstofunni LEX og í skjölum gamla Landsbankans. Af hverju gerir ekki skattrannsóknarstjóri húsleit hjá þessum aðilum?
8.4.2016 | 13:50
Bjarni eltir skottið á sjálfum sér
Siðblindur fjármálaráðherrann fer nú mikinn í pontu alþingis. Hann talar um að mikilvægt sé að treysta ríkisskattstjóra og skattrannsóknastjóra en á sama tíma fjársveltir hann þessi embætti og gerir þau í raun óstarfhæf. Í því ljósi eru fullyrðingar hans um að hann vilji ná í skottið á skattsvikurunum í besta falli hlálegar. Bjarni Ben veit sem er að skattsvikararar komast upp með allt samanber málaferli foreldra hans gegn íslenzkum skattayfirvöldum vegna undanskota á 1 milljarði króna. Þau undanskot voru glæpsamleg en eru meðhöndluð sem tæknilegt álitamál.
Þegar Bjarni talar um að elta skottið á skattsvikurum þá er hann að meina skottið á sjálfum sér.
8.4.2016 | 13:12
Aumingja Eygló
Í vetur varð frægt ákallið Kæra Eygló. Litlu skilaði það ákall miðað við uppleggið en lítið er nú talað um það. Eftir stendur að árangur Eyglóar Harðardóttur í embætti ráðherra er enginn. Þess vegna var það sérstaklega pínlegt að hlusta á hana að tala á Alþingi í morgun og færa það fram sem rök fyrir áframhaldandi stuðningi við endurskipaða ríkisstjórn, að verkin væru svo brín. Aumingja Eygló skilur ekki að ef ráðherra getur ekki hrundið í framkvæmd svo aðkallandi umbótum sem húsnæðismál eru, á 3 árum, þá getur hún það ekki á 3 mánuðum. Svo einfalt er það. Og að fórna trúverðugleika sem heiðarleg manneskja fyrir framlengt dauðastríð spilltustu ríkisstjórnar íslandssögunnar er dapurlegur endir á dapurlegum ferli í pólitík. Framsóknarflokkurinn er búinn að vera. Eygló er búin að vera.
![]() |
Vantraustið í beinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.4.2016 | 12:44
Setja verður lögbann á sölu allra eigna ríkisins
Bjarni Ben þykist hafa tryggt sér nægt svigrúm til að selja vildarvinum flokksins bitastæðustu eignir íslenzka ríkisins. Að frátöldum þeim, sem nú þegar hafa ratað í "réttar" hendur, eins og hlutinn í Borgun og ýmislegt fleira sem mjatlað hefur verið útúr Landsbankanum á liðnum mánuðum og árum. Þess vegna verður að bregðast við frekari gripdeildum ríkisstjórnarinnar og krefjast lögbanns á alla frekari umsýslu fjármálaráðherra unz kosningar hafa farið fram og allir kosningabærir íslendingar hafa kveðið upp sinn dóm yfir þeirri ráðdeild sem Bjarni Ben hefur beitt sér fyrir og felst í lækkun skatta á stóreignafólk og millarðamæringa og undanskot eigna náinna félaga og skyldmenna til skattaskjóla. Auk þess að hafa beitt sér gegn eðlilegu skattaeftirliti í landinu og dregið úr vægi sérstaks saksóknara með fjásvelti til þessara tveggja mikilvægustu embætta sem hér starfa, skattrannsóknarstjóra og sérstaks saksóknara. En það kemur mér ekkert á óvart og staðfestir bara hverra manna þessi ógæfumaður er. Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni eins og sagt er. Sonur skattsvikara og undanbragðafólks er ekki líklegur til að treysta hér undirstöður jafnréttis og lýðræðis, heiðarleika eða sanngirni. Burt með Bjarna Ben og allt hans hyzki, sem ekki vill taka þátt í þessu þjóðfélagi með okkur hinum. Sem ekki vill bera byrðaranar, bara hirða beztu bitana og fela í aflandsskjólum Flórida og Lúxemborgar.
![]() |
54,4% treysta ríkisstjórninni mjög lítið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.4.2016 | 12:13
Lilja verður spunamálaráðherra Sigmundar Davíðs
Ég ætlaði ekki að tjá mig um Lilju Alfreðsdóttur, vegna þess, að ég þekki ekki neitt til hennar eða hennar verka. Hún hefði getað komið á óvart og reynzt hin mætasta manneskja, þrátt fyrir að vera yfirlýst Framsóknarkona og þrátt fyrir að vera dóttir eins spilltasta framsóknarborgarfulltrúa seinni tíma, Alfreðs Þorsteinssonar. Manns sem ráðskaðist með málefni Orkubús Reykjavíkur sem síns eigin og olli fjárhagsskaða svo skipti milljörðum.
Þrátt fyrir þessi vafasömu fjölskyldutengsl hefði Lilja getað verið traust og með heilbrigða dómgreind. Hún hefði getað reynst góður liðsmaður hverrar ríkisstjórnar, en í fyrstu ræðu sinni á Alþingi tók hún af allan vafa um að hennar hlutverk er það eitt að berja í laskaða ímynd Sigmundar Davíðs og Framsóknarflokksins. Ekki eitt orð um að vinna að hag Íslands gagnvart útlöndum Hún sagðist vera komin í utanríkisráðuneytið til að leiðrétta rangfærslur útlendra blaðamannna sem hefðu valdið því fjaðrafoki sem hröktu Sigmund Davíð úr embætti forsætisráðherra. Manneskja sem telur það allt í lagi að leggja pólitískt orðspor landsins að veði fyrir siðblinda foryztu örflokks sem nýtur einskis trausts, hún er verri en þeir sem fyrir eru á fleti. Utanríkisráðherraembættið er einfaldlega mikilvægasta embætti landsins þegar kemur að orðspori þjóðarinnar erlendis. Lilja Alfreðsdóttir mun ekki valda því starfi ef marka má inntakið í fyrstu ræðu hennar á Alþingi.
![]() |
Orðspor Íslands með fyrstu verkefnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |