Ekki nóg að tala

Við árangri ég ekki bjóst
af öllum þessum rolum
Hjá vinstri grænum virðist ljóst
að verkstjórn er í molum

Kata litla er lítið peð
sem lætur vel að tala
og tapað hefur tvisvar með
tómum fagurgala.

Það vantar einhvern annan til
að efla keppnisskapið
ég engan hérna undan skil
ef allir "vinnið" tapið

 


mbl.is Allir eru að tala við alla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 7. nóvember 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband