Þessar kerlingar...

Margir bundu vonir við að þjóðfélagið myndi batna þegar konur létu meira til sín taka en reyndin er allt önnur. Þessar kerlingar eru nákvæmlega eins og karlarnir ef ekki verri.

Þórdís Lóa @rvk 
Vigdís Hauks @atvinnukverulant
Ebba Schram @borgarlögmaður (The Dagur's Advocat)
Dóra Björt @rvk
Agnes Sigurðardóttir @biskupi
Kristín Huld @Minjastofnun
Lilja Björk @Landsbankastjóri
Urður Gunnars @fme
Helga Björk @bankaráð Landsbanki
Svanhildur Nanna @Kvíabryggja!
Svanhildur Hólm @pylsuvagninn
Anna Kolbrún @klausturbar
Ingibjörg Sólrún @UN Women
.
.
.
.

og listinn virðist óendanlegur. Í öllum embættum sitja kerlingar sem gætu allt eins verið kallar.  Og þá kemur spurningin. Eru reykfylltu bakherbergin líka full af kerlingum?


mbl.is Hafa rætt kosningamálið í rúma 4 tíma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjarni ekki lesinn í skattafræðum

Þetta segja helstu sérfræðingar okkar um skattastefnu ríkisstjórnarinnar og hvernig má breyta henni með millifærslum innan kerfisins og með auðlindagjöldum.

"Tekjuskattar og aðrir beinir skattar eru sá hluti opinberrar skattheimtu sem hægt er að laga að tekjum og efnahag borgaranna og láta vinna gegn tekjulegu ójafnræði óbeinna skatta. Beinir skattar eru þannig alls staðar á Vesturlöndum notaðir til að jafna tekjuskiptinguna, en það er með minna móti gert á Íslandi og hefur verið minnkandi yfir tíma. Þetta felur í sér að lækkun skatta á lágar og miðlungstekjur á ekki að velta yfir í óbeina skatta en verður að vera borin uppi af auknum sköttum á háar tekjur og fjármagnstekjur einstaklinga og fyrirtækja, lokun á leiðum til skattahagræðingar og skattasniðgöngu, stóreignasköttum og með öðrum aðgerðum í tekjuskattskerfinu. Vegna mikils fjölda í lág- og millitekjuhópunum og þess hve þunnskipaður bekkur hátekju- og stórefnafólks er munu auknar tekjur innan tekjuskattskerfisins að meðtöldum fjármagnssköttum líklega ekki nægja til að viðunandi tekjum hins opinbera verði náð. Til að brúa bilið liggur beinast við að verja til þess tekjum af sameign þjóðarinnar, það er náttúruauðlindunum. Má sem fordæmi benda á að í Noregi stendur auðlindasjóður þeirra undir hluta af útgjöldum ríkisins. Hér yrði að sækja þetta fé til þeirra sem hingað til hafa notið þeirrar vildar að nýta auðlindirnar í eigin þágu, með aukinni álagningu auðlindagjalda."

Ríkisstjórnin er semsagt tilbúin til að eyða 30 milljörðum að eigin sögn svo fremi að þeir peningar komi alls ekki frá þeim efnameiri heldur í gegnum óbeina skattheimtu.
Bjarni Ben berst líka gegn öllum hugmyndum um að efla skattaeftirlit. Þar eru vinir hans að svíkja samfélagið um tugi milljarða á ári.  Og svo heldur ríkisstjórnin að verkalýðshreyfingin gleðjist yfir þessu útspili sem er ekkert útspil til að liðka fyrir kjarasamningum. Ríkisstjórnin lifir í öðrum veruleika en við hin. Veruleika þar sem þykir eðlilegt og sjálfsagt að ríkir hirði allan arðinn en öreigarnir beri allan kostnaðinn.

En sorrý, það eru aðrir tímar. Gylfi er ekki forseti ASÍ og Stefán er ekki formaður VR. Og síðast en ekki síst þá hefur Efling fengið til liðs við sig fólk sem bæði getur og vill.

Þetta vanmetur ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur og verður að taka afleiðingum og axla þá ábyrgð sem af því hlýzt.


mbl.is Boða nýtt 32,94% skattþrep
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkisstjórn ríka fólksins

Var það ekki nokkuð fyrirsjáanlegt að Verkalýðshreyfingin mun ganga bónleið til búðar, að sækja kjaraleiðréttingar í formi breytinga á skattkerfinu til Bjarna Benediktssonar.  Sama hvað menn fabúlera um ágæti Katrínar Jakobsdóttur, þá er það Bjarni Benediktsson sem öllu ræður og hann gefur ekkert eftir, af því sem ríka fólkið hefur fengið á kostnað öreiganna.

Hvort hér muni allt loga í verkföllum veit ég ekki en hitt finnst mér líklegra að VG verði ekki vært í þessu bandalagi sérhygli og spillingar miklu lengur fyrir óánægju baklandsins.

Eftir næstu kosningar munu línur skerpast. Annars vegar munum við sjá vinstra sinnað fólk fylkjast bak við Sósíalistaflokkinn og svo hrædda fólkið þétta raðirnar bakvið Sjálfstæðisflokkinn. Frjálslyndir og miðjuflokkar munu fá minna fylgi.


mbl.is Tillögurnar langt undir væntingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lilja skar sig sjálf úr snöru Minjastofnunar

Þessa athugasemd setti ég inná bloggið hjá Ómari Ragnarssyni:

Hvað nákvæmlega reyndi Lilja?  

Lilja reyndi nákvæmlega ekkert til að koma til móts við kröfuna um friðlýsingu. Það eina sem hún virðist hafa beitt sér fyrir, var að þrýsta á forstjóra Minjastofnunar um að draga skyndifriðlýsinguna til baka, og það tókst!

Eftir stendur Lindarvatn sem algerir sigurvegarar í deilunni og sem slíkir með sterka stöðu í væntanlegu skaðabótamáli.

Hvort þessi bygging verði nokkuð fjármögnuð á næstunni er svo alls óvíst. Á bak við þetta fyrirtæki standa ekki sterkir verktakar. Þetta eru ómerkilegir lóðabraskarar sem sáu sér leik á borði að hagnast með því að nota peninga annarra. Því þetta verkefni gat aldrei komist þetta langt nema af því lífeyrissjóðir lögðu til fé í gegnum Icelandair Group. Óvíst er að þaðan komi meiri peningur á næstu árum.  Þessi sigur kann því að reynast sannkallaður Phyrrusar sigur. 

Farsælast hefði verið að minnka þessa byggingu til muna og halda frið við nágranna og þannig hefði kannski opnast sá möguleiki að leyfa inngang frá Austurvelli.


mbl.is Lilja: „Sigur fyrir söguna“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 19. febrúar 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband