23.4.2010 | 01:05
Til Steinunnar Valdísar af gefnu tilefni
Græðgin þig í gönur dróg
og gerði að þrælakvinnu
Fólkið hefur fengið nóg
fáðu þér aðra vinnu.
og gerði að þrælakvinnu
Fólkið hefur fengið nóg
fáðu þér aðra vinnu.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Gæti verið betra að hafa rímorðin "dró" og "nó" - dróg hefur aðra meiningu - bykkja - sem hún líka er!
Skyldi einhver blaðamaður fara ofan í spillingarmálin nennar og lesa umræður og afgreiðslur - um lóðamál o.s.frv!
Kveðja,
Ragnar
rsgnare (IP-tala skráð) 23.4.2010 kl. 04:50
Sammála Ragnari um að "dró" ætti að skrifa þannig en ekki eins og Jóhannes gerir. Vísan þykir mér góð og framburður en ekki ritháttur á að ráða rími. Mér finnst líka að vel megi sleppa úrfellingarmerki á eftir "fáðu" og "gerði". Síðustu línuna finnst mér að eigi að bera fram eins og hvorki u-ið eða þornið séu þarna og sama er að segja um i-ið í gerði.
Sæmundur Bjarnason, 23.4.2010 kl. 07:07
Draga, dró(g) drógum, dregið! Allt í lagi að stela einu géi í þágu rímsins, ekki satt félagar!
Þetta er hvöss vísa til fyrrverandi borgarstjóra, sem missti sig gjörsamlega í siðferðinu, á alþjóðlegan mælikvarða, en hún líklega bögglast enn við að réttlæta þetta á íslenskan mælikvarða, og til þrautavara beita vörninni: "já en allir gerðu það líka"!
Jenný Stefanía Jensdóttir, 23.4.2010 kl. 07:49
Takk fyrir innlitin og athugasemdirnar
Já, þetta eru ótrúlegar upphæðir og komu öllum á óvart. Að kaupa sér völd eins og Steinunn gerði, verður ekki liðið. Allir þeir, sem tóku þátt í þeim spillingardansi verða að víkja. Bæði af þingi og úr stjórnum sveitarfélaga
Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 23.4.2010 kl. 14:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.