Skýrsla RNA á hljóðbók

Hið frábæra framtak Borgarleikhússins í samvinnu við Blindrabókasafnið hefur nú verið gert aðgengilegt til niðurhals fyrir almenning án gjalds, á vef Blindrabókasafnsins.  4 fyrstu bindin eru tilbúin og munu seinni 4 bindin bætast við á næstu dögum. Hljóðbók nýtist mörgum og þegar notað er lestrarforrit eins og Amis, sem einnig er hægt að sækja á vef Blindrabókasafnsins, þá getur hver og einn haft sína hentisemi við hlustun. Ég hvet alla til að koma þessum upplýsingum áfram, því litla umfjöllun hef ég séð í fjölmiðlum. Kærar þakkir til leikaranna sem lásu og starfsmanna Blindrabókasafnsins, sem unnu efnið til hlustunar

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Daníelsson

Góðar þakkir fyrir þessa ábendingu, Jóhannes.

Og vel að merkja er það rétt hjá þér að þetta er aldeilis frábært framtak. Ég tek undir þakkir til leikaranna og Blindrafélagsins.

Jón Dan. 

Jón Daníelsson, 24.4.2010 kl. 00:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband