25.4.2010 | 15:15
Hvar er Stefán Jón Hafstein?
Það er pínlegt að fylgjast með viðbrögðum Samfylkingarinnar við ávirðingum og ámæli sem nú dynja á flokknum. Greinilegt er að þarna fer flokkur í hugmyndafræðilegri kreppu. Hvort Ingibjörgu Sólrúnu sé um að kenna dreg ég í efa. Þarna komu margir að borðinu og miklir hagsmunir voru undir eins og sést berlega á mútugreiðslum til flokksins og frambjóðenda hans. Nú er þörf á nýjum vöndum. Nú þarf að kalla menn til starfa. Enginn mun bjóða sig fram í nafni endurreisnar. Hvar er Stefán Jón Hafstein?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.