Að ræna innanfrá

Þótt þetta orðasamband hafi mest verið haft um fall bankanna, þá er það
víðar sem ránin voru framin. Til dæmis var framið valdarán í
Samfylkingunni vorið 2005, þegar Ólafur Ágúst var kosinn  varaformaður í
sms kosningu. Þetta valdarán tel ég marka upphaf frjálshyggjudaðurs
(Blairisma) Samfylkingarinnar, sem leiddi til myndunar
Þingvallastjórnarinnar 2 árum seinna. Öll vitum við hverjar
afleiðingarnar urðu af því. Ef Samfylkingin hefði þá hlýtt kalli
kjósenda og myndað vinstri stjórn, þá er hægt að færa rök fyrir því, að
hrunið hefði ekki skollið á okkur með þeim þunga, sem seinna varð. 
Þetta veit ég að liggur þungt á fleirum en mér. Og okkur líður eins og
flokknum okkar hafi verið stolið af okkur. Það þarf nefnilega ekki
alltaf byltingu til að ræna völdum, stundum er nóg að sýna andvaraleysi.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Bið forláts á villumeldingunni fyrir þá sem fylgja slóðum Blogg Gáttarinnar. Þurfti að laga smá innsláttarvillu og gat það ekki nema eyða færslunni og skrifa nýja. Kannski er hægt að breyta án þess, en ég kann það ekki

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 25.4.2010 kl. 19:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband