Nýjar hugmyndir um borgarmálefnin

Ég vil að :
  1. Höfuðborgarsvæðið verði 1 sveitarfélag.
  2. Borgarstjóri verði ráðinn á faglegum nótum.
  3. Hverfaráð stjórni innri málefnum sinna hverfa
  4. 30 manna borgarstjórn verði kosin persónukosningu og eigi allir þessir fulltrúar      jafna aðkomu að pólitískri stefnumörkun. Meirihlutar geti skapast þvert á hin ýmsu pólitísku stefnumál en ekki verði um hefðbundinn meirihluta og minnihluta að ræða
  5. Borgarfulltrúar komi ekki að daglegum rekstri eða stjórn borgarinnar eða fyrirtækja hennar. Varaborgarfulltrúar verði ekki á launum.
  6. Tekið verði á skipulagsstjórn borgarinnar þannig að eigendur lóða hafi ekkert með skipulagsvinnuna að segja. Mótað verði samræmd stefna um framtíðarskipulag og borið undir samþykki hverfaþinga. Ef t.d hús brennur þá sé til samþykkt skipulag um hvernig hús sé reist í staðinn.
  7. Við sameiningu stór-Reykjavíkursvæðisins, skapast tækifæri til að flytja flugvöllinn út á Álftanes og bæta samgöngur með gerð vegar sem lægi með sjónum frá Grafarvogi suður til Hafnarfjarðar með hábrú yfir Grafarvog og úr Selsvör yfir á Alftanes 
  8. Engin Samgöngumiðstöð rísi  við Öskjuhlíð, henni verði fundinn staður í Mjódd með framtíðar raflestartengingum við Keflavík og Flugvöllinn á Álftanesi
  9. Hætt verði við byggingu Sjúkrahússins við Hringbraut og því fundinn nýr staður meir miðsvæðis. Mjóddin kemur aftur til greina

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Baldursson

Sammála flestu....þó

4. "Meirihlutar geti skapast þvert á hin ýmsu pólitísku stefnumál en ekki verði um hefðbundinn meirihluta og minnihluta að ræða"...verður tæplega á komandi árum....því miður

5. "Borgarfulltrúar komi ekki að daglegum rekstri eða stjórn borgarinnar eða fyrirtækja hennar"... hummmm... ég er ekki til í að afhenda borgina embættismönnum.....

7. Ekki tímabæt pæling....seinni tíma mál....afskaplega dýrt, en ef seinni tíma menn finna þessu farveg...kannski...en svona mál er ekki bara mál Reykjavíkur heldur landsins alls. Þjóðaratkvæði gæti því betur skorið úr um þetta. Sameining er hins vegar mjög raunhæf pæling.

8. Aldrei...lestarsamgöngur eru svo dýrar fjárfestingar og auk þess krefst reksturinn verulegrar notkunar, meira en við getum nokkurn tíma nýtt.

9.Höfðabakka...fara lengra í Austur....en samt sú bygging er líka framtíðarmúsík í bili....

Samantektin í heildina er afskaplega góð. Þó ég komi með álit á hluta hennar er þetta alls ekki slæmt.

Haraldur Baldursson, 28.4.2010 kl. 00:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband