28.4.2010 | 00:54
Enn þvælast hugtökin fyrir hrunverjum
Merkilegt er að fylgjast með afneitun og réttlætingum hinna siðspilltu stjórnmála og viðskiptamanna sem mest koma við sögu í skýrslu RNA. Af því að hrun efnahagskerfisins er mælanleg og hlutlæg stærð þá ætla ég að einskorða þennan pistil við það. Ég ætla ekki að tala um ábyrgð eða siðferði. Það er of flókið, hinsvegar langar mig að tala um innherja. Í skýrslunni góðu voru skuldir manna sem höfðu notið óeðlilegrar lánafyrirgreiðslu tíundaðar. Aðeins var talið upp hverjir fengu þessi lán en ekki til hvers þau voru tekin eða hver staða þeirra er núna. En það er einmitt ekki síður mikilvægt að vita hvernig þessi lán standa í dag. Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins sagði í samtali við Viðskiptablaðið að hann hefði greitt sínar skuldir að mestu fyrir bankahrunið, hið sama sagði Ármann Kr. sjálfstæðismaður úr Kópavoginum. Tryggvi Þór losaði sig við sitt skuldamix með því að selja sitt félag og hið sama gerði hinn nýi þingmaður, Óli B. Kárason. En vegna þess að allir þessir menn voru vel tengdir inn í stjórnmálin og Bankana þá bjuggu þeir yfir innherja upplýsingum sem almenningur hafði ekki aðgang að og gátu hagnýtt þær til að losa sig við skuldir og áhættu vegna fjármálahrunsins. Ekki var rannsakað hverjir af þessum innherjum losuðu sig við pappírseignir, svo sem hluti í peningamarkaðssjóðum eða hverjir seldu hlutabréf kortér í hrun eða hverjir eiga erlenda bankareikninga. Baldur ráðuneytisstjóri hefur verið kærður fyrir innherjasvik en telur sig saklausan. Hugtakið innherji er að þvælast fyrir þeim ágæta manni eins og öllum hinum. Hvernig væri nú að allir þingmenn og innstu koppar í búri stjórnmálaflokkanna, leggðu nú heimilisbókhaldið á borðið og leyfðu kjósendum að skera úr, hverjir vissu og hverjir vissu ekki. Það væri meiri háttar slys ef einhver eins og Ármann næði kjöri til sveitastjórnar Kópavogs í vor. Og takið eftir að það er ekki verið að taka menn af lífi með þessu eða búa til einhvern dauðalista eins og leigupenninn á DV, Borgþór stjúpsonur sakar Hreyfinguna um, heldur er verið að framkvæma nauðsynlega siðvæðingu sem grundvöll að sátt og trausti almennings og þeirra fulltrúa, sem hann kýs til að fara með valdið.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.