Er í lagi að brenna þjóðfána?

Fréttamynd í kvöldfréttum RUV af reiðum múslimum að brenna bandaríska fánann virðist ekki vekja nein sérstök viðbrögð. En fréttir af fyrirhugaðri brennu á trúarriti múslima skekja heimsbyggðina! Hvað veldur?  Eru menn virkilega svona hræddir við hefndaraðgerðir öfgatrúarhópa, að menn gera allt til að hafa þá góða, jafnvel horfa framhjá fánabrennum? Samkvæmt íslenskum lögum þá er það mitt einkamál hvað ég geri við bækurnar mínar en mér er bannað að vanvirða þjóðfána. Til umhugsunar fyrir múslima sem hér búa og halda að þeirra siðir og trú séu æðri landslögum

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það er svo fyrir mælt í reglum um Íslenska fánann að hann skuli brenndur, ekki má eyða honum á annan hátt.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 10.9.2010 kl. 00:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband