Að róa almenning?

Forsætisráðherrann okkar hljóp heldur betur á sig þegar hún sagði í viðtali við RÚV í kvöld að nefndin sem skilaði af sér í gær hefði verið skipuð til að róa almenning! Hvað á forsætisráðherra við?  Eru stjórnvöld og alþingismenn að setja á fót leikrit um sýndaraðgerðir og málamyndatiltektir? Á engu að breyta?  Ég verð að segja að þótt þingskjal 1501, SKÝRSLA þingmannanefndar til að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. sé vel samin og full af fyrirheitum þá treysti ég ekki núverandi þingmönnum til að framkvæma það sem þar er talað um og þaðan af síður Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. Klofningur nefndarinnar sýnir það svart á hvítu að enginn verður dreginn til ábyrgðar frekar en fyrri daginn. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins gefa skít í nefndina, Guðlaugur Þór sá ekki ástæðu til að svara bréfi nefndarinnar frekar en hann sá ástæðu til að fara að ályktun Landsfundar flokksins síns og segja af sér og Bjarni Vafningur Benediktsson hefur ekki sannfæringu fyrir að glæpur hafi verið framinn!  Hvurslags framkoma er þetta gagnvart þjóðinni, sem hungrar í réttlæti. Þótt ekki sé nema að stjórnmálamennirnir stígi fram og viðurkenni að þeir brugðust því trausti sem til þeirra var borið. Okkur er alveg sama þótt Geir og Ingibjörg verði ekki dæmd til fangelsisvistar en það verður að kalla saman Landsdóm og ákæra.  Þjóðin hlakkar svo sannarlega ekki yfir þeirri stöðu sem stjórnmálamenn hafa komið sér í en hún vill losna við óhæfa stjórnmálamenn. Þessvegna viljum við kosningar strax. Það er hið eina sem róar almenning Jóhanna Sigurðardóttir

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband