12.9.2010 | 05:20
Bloggæði
Ég er ekki einn af þessum bloggóðu einstaklingum sem farið hafa hamförum á netinu undanfarin ár. Og í raun og veru þá hafði ég engan sérstakan áhuga á pólitík. Ég hafði öðrum hnöppum að hneppa og önnur áhugamál. þar fyrir utan kaus ég mína fulltrúa á fjögurra ára fresti til að sjá um þessi mál fyrir mína hönd og því þá að skipta sér af! En síðan fór af stað atburðarás sem jók áhyggjur mínar um að það væri nú ekki allt í lagi með stjórn landsins. Fyrstu viðvörunarbjöllurnar hringdu þegar einkavinavæðingin hófst. Þá var strax ljóst að ekki var unnið af heilindum eða í almannaþágu. Þar voru ríkiseigum úthlutað á silfurbökkum til vina og flokksmanna, hægri vinstri. Allir flokkar komu að þessu svínaríi og enginn hreyfði mótbárum sem nokkru næmi. Ekki einu sinni SteingrímurJ.! Einkavinavæðingin náði svo hámarki spillingarinnar við sölu ríkisbankanna eins og kunnugt er og markar sú framkvæmd upphaf hrunsins. Árin þar á eftir breytist íslenskt samfélag úr því að vera dæmigert útvegs og bændasamfélag í það að snúast um kauphallarviðskipti og hlutabréfavísitölur. Öll opinber umræða var gegnsýrð af peninga og gróðahyggju og viðskipti áttu hug manna allan. En þó voru margir menn sem héldu meðvitund í allri geðveikinni, þar á meðal undirritaður sem trúði aldrei á þessar bólur og beið bara eftir að hlutabréfa og fasteignabólurnar springju. Á þessum árum hlustaði ég mikið á Útvarp Sögu og sérstaklega á þá félagana Sigurð og Lobba , sem voru óþreytandi í að benda á að keisarinn væri nakinn. Og ekki var álit þeirra á Árna Matthíassyni sem fjármálaráðherra mikið. Eyddi Guðmundur miklum tíma í að gagnrýna efnahagsstjórn Geirs og Davíðs og Árna allt frá upphafi. Þessvegna er vörn sú sem ráðherrarnir, sem til stendur að ákæra fyrir embættisafglöp, ansi máttlítil þegar þeir bera fyrir sig óviðráðanlega atburðarás sem hafi átt upptök í falli Lehman´s banka. Sú atburðarás felldi að vísu alla bankana en aðeins afþví þeir voru reistir á lofti. Hrunið hefði aldrei orðið ef bankarnir hefðu aldrei farið í þessa útrás. Og skyldur ríkisstjórnarinnar var að sjá til þess að hér ríkti fjármálalegur stöðugleiki. Þess í stað var rekið hér uppblásið loftbóluhagkerfi og tökin á peningamálunum svo laus að sveitarfélögum jafnt sem einstaklingum var leyft að reisa sér nær óbærilega skuldafjötra. Afleiðingarnar eru ekki allar komnar í ljós en samt eru skuldbindingar ríkissjóðs vegna slæmra ákvarðana ráðamanna margföld landsframleiðsla og enn er gefið í varðandi skuldasöfnun. Hér á að byggja upp heimsins stærsta gjaldeyrisforða fyrir lánsfé frá AGS þótt engin rök mæli með því. Og örvita sveitastjórnamenn sem búnir eru að tæma alla sjóði og eiga ekki lengur handbært fé frá rekstri eru byrjaðir að slátra mjólkurkúnum. Til allrar hamingju fyrir Reykvíkinga þá kusum við nýtt fólk til að stýra borginni. Þetta nýja fólk sem hefur mátt sæta persónulegu skítkasti af leppum fjórflokksins er að standa sig vel. Kannski tekst þeim að bjarga Orkuveitunni frá gjaldþroti og slá af þessar virkjanir sem áttu að sjá álverinu í Helguvík fyrir orku. Álverið í Helguvík verður vonandi minnisvarði um stóriðjufyllerí örvita kalla sem réðu of miklu og of lengi. Við eigigum nefnilega annarra kosta völ heldur en stóriðju í álbræðslu. Við eigum vannýtt fiskimið allt í kringum landið og eina sem þarf til að setja í gang stórfellda atvinnuuppbyggingu á sviði veiða og vinnslu er að losa okkur við fjórflokkinn af þingi og fá til þingmennsku fólk sem þorir að ganga gegn gömlu hagsmunaklíkunum. Fólk sem er ekki hrætt við að taka ákvarðanir í almannaþágu þótt þær komi illa við flokksgæðingana og peningaöflin. Þetta er ástæðan fyrir því að ég og margir aðrir blogga. Okkur finnst að alþingismenn séu ekki að taka réttar ákvarðanir og við sjáum ennþá spillinguna blómstra í skjóli stjórnmálamanna. Þessvegna er bloggið aðalvettvangur virkrar gagnrýni í dag. Og þessvegna vill Katrín Jakobsdóttir setja fjölmiðlalög til höfuðs bloggurum. Valdastéttinni finnst sér ógnað. Lifi bloggbyltingin
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.