En hvað með Jón Þór Sturluson?

Allt frá því að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis kom út og til dagsins í dag hef ég velt fyrir mér furðulegri hegðun Jóns Þórs Sturlusonar, aðstoðarmanns fyrrverandi Viðskiptaráðherra, Björgvins G. Sigurðssonar. Hvernig gat það skeð að sérlegur aðstoðarmaður ráðherra tók þátt í samsæri Ingibjargar og Össurar um að halda mikilvægustu upplýsingunum, sem vörðuðu ábyrgðarsvið viðskiptaráðherrans, frá sínum yfirmanni?  Og fyrst það er nú viðurkennt og lýðum ljóst er þá ekki borðleggjandi að höfða refsimál á hendur Jóni Þóri og Össuri?  Það er óþolandi að embættismenn og sérlegir ráðgjafar gangi frá hruninu með óflekkað mannorð á meðan allri skuldinni er skellt á örfáa ráðherra, án þess þó að ég sé á nokkurn hátt að gera lítið úr þeirra ábyrgð.  Málsbætur óvitanna eru nú helstar þær að upplýsingum hafi verið haldið frá þeim. Það má vel vera en ber þá ekki að upplýsa hverjir það voru og draga þá líka til ábyrgðar? Okkur almenningi svíður þessi samtrygging ráðamanna og getuleysi dómsstóla til að halda uppi alvöru réttarríki. Við viljum að embættismenn jafnt sem ráðherrar verði látnir sæta ábyrgð. Stjórnarmenn Seðlabankans fyrir hrun, ásamt öllum bankastjórunum verða að sæta ábyrgð svo og stjórn FME og forstjóri. Og síðast en ekki síst eiga aðstoðarmenn ráherranna sem mesta ábyrgð bera tvímælalaust að sæta rannsókn. Og ef þessi handónýti Ríkisaksóknari vill ekki vinna vinnuna sína þá þarf að bera hann út líkt og fyrrverandi Seðlabankastjóra.  Við höfum ekki lengur efni á að halda uppi ónýtri stjórnsýslu. Og það ber tvímælalaust að afnema eftirlaun allra þessara manna sem ég hef hér upp talið. Alþingi verður að taka til umfjöllunar þingmál Þráins Bertelssonar um það efni. Annað er ekki ásættanlegt.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband