13.9.2010 | 08:21
Jón er kominn heim
Jón Baldvin er kominn heim og byrjaður að rífa kjaft. Þetta er orðið árvisst. Og tilefni þessa pistils er ræða Jóns Baldvins, sem hann hélt í boði Rósarinnar í Rúgbrauðsgerðinni sl. laugardagskvöld og fjallaði um þær deilur sem nú eru uppi um fiskveiðistjórnarlögin og kvótakerfið. Þetta var skrítin ræða og bitlaus ef hún hefur átt að vera innlegg í umræðuna um breytingar á fiskveiðistjórnuninni. Nú finnst mér mínum gamla skólameistara verið farið að förlast og minnið að bregðast honum þegar hann eignar sér ákvæðið um sameign þjóðarinnar á fiskinum í okkar lögsögu. Þetta merkingarlausa ákvæði nota bene! Ég man ekki betur en það hafi verið sett inn í frumvarpið að tillögu Kvennalistans sáluga. Og skrítinn er samanburður Jóns á kvótanum okkar og úthlutun hans annars vegar og svo hins vegar nýtingarfyrirkomulagi Norðmanna á olíunni sinni. Þar er ólíku saman að jafna. Af hverju ber Jón ekki saman stjórn fiskveiða hér við stjórn Norðmanna á sínum fiskveiðum? Norðmenn eru nefnilega ekkert minni fiskveiðiþjóð en við, þeir bara stjórna sínum málum af meiri skynsemi. Þeir meðhöndla heldur ekki fiskstofnana sem auðlind á svipaðan hátt og olíuna eða fallvötnin sem einhverja gróðalind! þeir nýta þetta bara í þágu landsmanna allra og þar hefur ekki orðið nein sambærileg byggðaröskun og hér vegna mismununar og valdníðslu. Ef Jón baldvin og Samfylkingin vill vera trúverðug þegar fjallað er um framtíðarskipulag fiskveiða þá gengur ekki að hjakka í þessari úreltu hugmyndafræði að hægt sé að rækta upp fiskstofnana í hafinu líkt og hægt er að gera með kvíaeldi eða strandeldi. Það er ekki hægt. Þess vegna er sjálf forsendan fyrir núverandi kerfi byggð á blekkingu. Þetta þurfa stjórnmálamenn að átta sig á og viðurkenna. Hitt er svo annað mál hvort við ákveðum að stjórna fiskveiðum með því að ákveða árlega kvóta. Það kemur sterklega til greina en hefur ekkert með fiskifræði að gera. Fiskveiðistjórnunin á að snúa að skynsamlegri nýtingu sem kemur í veg fyrir slæma umgengni um þessa "auðlind" og það gegndarlausa brottkast sem núverandi kvótakerfi stuðlar að. Fiskveiðistjórnunin á ekki að byggja á gervivísindum þar sem mönnum er mismunað í formi sjálfvirkrar kvótaúthlutunar , óháð því hvort menn veiða þennan kvóta sjálfir eða ekki. Þeir sem vilja stunda sjómennsku og hafa til þess þekkingu, áhuga og einhverja baktryggingu eiga að geta keypt sér kvóta úr sameiginlegum potti á viðráðanlegu verði. Þetta kjaftæði um auðlindarentu er bara það. Kjaftæði Vel rekin útgerð er bara útgerð, sem stendur undir eðlilegri fjárfestingu, skapar eigendum og starfsmönnum atvinnu og tekjur og skapar öðrum atvinnu í formi fullvinnslu, þjónustu og verslunar. Því fleiri svona litlar útgerðareiningar út um allt land, því betra. Við höfum ekkert að gera með þetta stórútgerðarfyrirkomulag sem hefur verið að myndast í krafti samþjöppunar kvóta undanfarna tvo áratugi. Ef jón Baldvin er tilbúinn að ljá svona hugmyndum lið þá munu fleiri hlusta því karlinn er magnaður ræðumaður. Einn sá albesti
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Hér fær verksmiðjuskipahjörðinn að hanga á 12 mílunum og ryksuga lífsbjörgina
frá þjóðinni, Færeyjingar hafa þessi skip fyrir utan 200 mílur takk fyrir.
Aðalsteinn Agnarsson, 13.9.2010 kl. 13:05
Ef þetta væru nú verksmiðjuskip Aðalsteinn þá ættu þeir sér málsbætur. En þetta eru flakafrystitogarar sem hirða bara 35% af hverju kílói sem fer í gegnum vinnsluna. 65% fara beint í sjóinn aftur fyrir utan meðaflann sem passar ekki í vinnsluna hverju sinni. Þetta þarf að laga. Það þarf að skylda vinnsluskipin til að vinna úr öllum afla þótt það kosti styttingu veiðiferða. Það er ekki lögmál að frystiskip þurfi að vera í mánaðarúthaldi. Og þar fyrir utan þarf að losna við öll togskip af grunnslóðinni. Ekki spurning
Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 13.9.2010 kl. 13:32
Flottur Jóhannes, ég kalla þessa dalla verksmiðjusk. en þetta er alveg rétt hjá þér.
Aðalsteinn Agnarsson, 13.9.2010 kl. 13:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.