Landsdómur og Þjóðaratkvæðagreiðslur

Athyglisvert var að hlusta á viðbrögð stjórnmálamanna í Kastljósi kvöldsins við atburðum dagsins. Sérstaklega áhugavert var að hlusta á Sjálfstæðismennina emja undan áformum um að ákæra hrunráðherrana og draga þá fyrir Landsdóm. Og nú er farinn í gang mikill spuni sem snýr að því að ónýta málatilbúnað hugsanlegs Landsdóms. Þetta var fyrirsjáanlegt og því er brýnt að allir réttsýnir menn taki nú höndum saman í að hrinda áformum um Landsdóm í framkvæmd og draga með því ráðherra til ábyrgðar fyrir þá stórfelldu vanrækslu sem þeir sannanlega eru sekir um.  Höfum í huga eins og Sigurður Líndal benti á, að núverandi fyrirkomulag með lögunum um Landsdóm ber ekki að breyta vegna þess að lögin um ráðherraábyrgð eiga aðeins við um ráðherrana og enga aðra. Þess vegna eru ekki rök fyrir því að færa málarekstur gegn ráðherrum undir almenna dómsstóla. Hitt er alveg rétt að það þarf að breyta stjórnarskránni og taka frá alþingismönnum verkefni sem þeir eru ekki færir um að afgreiða á sannfærandi hátt.  Þar ber hæst sá kaleikur að ætla þinginu að ákæra og draga ráðherra fyrir Landsdóm. þetta hlutverk og vald verður þingið að geta framselt til óháðra aðila samkvæmt fyrirmælum í stjórnarskrá.  Ef alþingismenn fallast á svona breytingar þá eru þeir þar með búnir að viðurkenna að fulltrúalýðræðið virkar ekki í raun og þeir verði í vaxandi mæli að framselja vald sitt til þjóðarinnar um úrlausn mikilvægra mála. þannig falla síðustu rök þeirra sem eru á móti þjóðaratkvæðagreiðslum um sjálf sig.  Þetta verður nauðsynlegt innlegg fyrir þjóðfundinn um Stjórnlagaþingið að taka til umfjöllunar. Við erum hér að horfa upp á þingræðið verða fyrir alvarlegum áföllum þar sem þingmenn eru ófærir um að taka hlutlægar ákvarðanir. Enda finnast þar enn menn sem bara strita við að sitja, í óþökk kjósenda og flokka

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband