13.9.2010 | 22:55
en það saknaði hennar enginn!
Ekki vakti það fögnuð hjá landanum að sjá Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur taka sæti á þingi í dag eftir skamma fjarveru. Óli Björn þótti almennt standa sig vel og þrátt fyrir að vera þar í umboði kjósenda Sjálfstæðisflokksins, þá fannst mér hans málflutningur vera meira í takt við almenna hugsun í landinu. Ekki þessa hjarðhugsun sem búið er að festa í sessi í Sjálfstæðisflokknum. En hvað rekur Þorgerði til að snúa aftur í pólitíkina? Trúir hún því að hún eigi sér framtíð í stjórnmálum eftir framgöngu hennar í aðdraganda hrunsins. Það er staðreynd að hún talaði sérstaklega máli bankanna og fór þar inná valdsvið annarra ráðherra. Og það sem almenningur sættir sig ekki við er, að hún hafði fjárhagslegra hagsmuna að gæta og vegna innherja vitneskju hennar þá settu þau hjónin fjárhagsskuldbindingar sínar í einkahlutafélag löngu áður en aðrir bankamenn í svipuðum sporum fóru að íhuga þann möguleika. Þessu getur Þorgerður ekki mótmælt því enginn trúir því að hún hafi ekki vitað um það sem Kristján gerði eða að Kristján hafi ekki vitað af áhyggjum stjórnvalda um fjármálastöðugleikann í gegnum konu sína. En nú vill hún semsagt snúa aftur, viðþolslaus af áhuga.. Þessi manía er óhugnanleg og alltaf þegar þetta ber á góma verður mér hugsað til tíkur sem við áttum í sveitinni í gamla daga og var með svona dráttarvélamaníu. Hún mátti ekki heyra traktor settan í gang úti á hlaði öðruvísi en þjóta af stað og setjast uppí hús og fara með. Skipti engu hvað hún var að gera þegar þannig stóð á. Sérstaklega minnisstætt er mér í eitt skipti þegar tíkin var í miðju goti, hafði gotið 4 hvolpum þegar ég þurfti að fara að vinna á traktornum. Skipti engum togum að um leið og ég set traktorinn í gang þá kemur tíkin hlaupandi og gerir sig klára til að stökkva uppí til mín. Þá varð ég að taka ráðin af henni og vísa henni aftur inn og loka hana inni til að hún gæti lokið við gotið. Gekk það svo eftir og hún átti 5 eða 6 hvolpa í viðbót það skiptið. En af hverju er ég nú að segja frá þessu hér... Jú , af því að ég velti því fyrir mér með hana Þorgerði blessaða hvort hún eigi engan velgerðarmann sem getur tekið af henni ráðin og sagt: "Þetta er orðið gott Þorgerður. Nú skaltu slappa af og hlúa að fjölskyldunni"
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 15.9.2010 kl. 23:21 | Facebook
Athugasemdir
FLOTTUR.
Aðalsteinn Agnarsson, 13.9.2010 kl. 23:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.