13.9.2010 | 23:42
Áfallastreituröskun
Áfallið sem þjóðin varð fyrir við hrunið má líkja við þá áfallastreituröskun sem hermenn verða gjarnan fyrir í stríðsátökum. En öfugt við hermennina þá bauðst þjóðinni engin hjálp við að vinna úr þessu áfalli. Búast má því við að afleiðingarnar verði erfiðar og langvinnar. Sú tortryggni, reiði og ótti sem hér hefur ríkt eru eðlilegar tilfinningar í því ljósi og ber ekki að gera lítið úr þeim. Samt finnst mér okkur hafa miðað dálítið í rétta átt. Reiðin er að minnka en samt er ástandið viðkvæmt fyrir marga og vissara fyrir þingmenn og stjórnvöld að stíga varlega til jarðar og íhuga vel ákvarðanir sem teknar verða á komandi vetri. það er mikið í húfi fyrir marga.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.