15.9.2010 | 20:25
Húmorslausir arkitektar
Ekkifrétt dagsins hlýtur að vera kvörtun arkitekta vegna ummæla sem Mörður lét falla í kaffispjalli á nefndarfundi Alþingis. Nú fer að vera vandlifað í henni veröld ef ekkert má lengur segja eða skrifa nema húmorslausan sótthreinsaðan texta sem engan styggir! Arkitekta eiga bara að skammast sín fyrir þetta upphlaup. Þetta er bara starfsstétt en ekki sjálfboðaliðasamtök að sinna mannúðarmálum. Og þeirra verk eru ekkert undanskilin gagnrýni sérstaklega þegar sannað þykir að þeir gefa gjarnan eftir þegar fjármagnið krefst þess. Nægir að vitna í heimildarmyndina um byggingu Konunglega Óperuhússins í Kaupmannahöfn, en þar sagðist aðalarkitektinn Henning Larsen, oft hafa verið að því kominn að hætta þegar Möller skipakóngur gerði breytingar á teikningunum.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:20 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.