Klikkun í Samgönguráðuneytinu

Þær eru ótrúlegar þessar fréttar sem nú berast úr Samgönguráðuneytinu að ætlunin sé í alvöru að dýpka Atlantshafið. Maður hélt eftir allt klúðrið með Grímseyjarferjuna og síðan Héðinsfjarðargöng að menn hefðu lært sína lexíu en það er öðru nær. Af hverju er íslenskum embættismönnum og ráðherrum, fyrirmunað að viðurkenna mistök og hætta við vonlaus verkefni áður en þau valda ríkissjóði hundruðum milljóna króna kostnaði? Er það vegna þess að stjórnsýslan er í molum og enginn ber ábyrgð eða er þetta heimska og hroki? Það hljóta að vera takmörk fyrir því hve miklu er verjandi að eyða í Landeyjarhöfn og eða ferjusiglingar milli lands og Eyja. Ef menn ætla að eyða hundruðum milljóna í að dæla sandi fyrir utan Landeyjarhöfn í vetur þá eru menn algerlega veruleikafirrtir. Ég þori ekki lengur að tala um klikkaða karla. Landeyjarhöfn getur vel þjónað sem ferjuhöfn á sumrin en það mun aldrei svara kostnaði að halda henni opinni yfir vetrarmánuðina. Það verður nú þegar að taka ákvörðun um að samgöngur verði best tryggðar með siglingum til Þorlákshafnar og þann kostnað muni ríkið niðurgreiða sem fyrr. Síðan kemur sterklega til greina að afhenda Vestmannaeyjabæ mannvirkin í Landeyjarhöfn og láta þá ráða hvernig þau verða nýtt í framtíðinni. Að halda henni opinni yfir sumarið ætti ekki að vera dýrt. Aðeins þyrfti að hreynsa hana einu sinni að vori sem mundi duga fram á haust. En að ætla sér að halda áfram að nota Landeyjarhöfn í vetur og kosta stanslausa dælingu á sandi er jafn geðveikislega vitlaust í dag eins og þegar það var iðkað á Kleppi í gamla daga. Menn skulu athuga að það er verið að dæla sandi langt fyrir utan sjálfa höfnina og losa hann aftur í sjóinn aðeins utar þar sem hann berst svo aftur að innsiglingunni í næsta suð-vestan áhlaupi.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Grétar Guðmundsson

Ég hef lagt til að Landeyjahöfn verði lokað í vetur, Herjólfur sigli til Þorlákshafnar a. m. k. þann tíma, en tíminn notaður til að finna einhverjar leiðir, ef finnanlegar eru, til að gera Landeyjahöfn nothæfa. Ég er ekki í nokkrum vafa að til þess er aðeins ei leið og bjargvætturin er Markarfljót sem getur unnið gegn sandburðinum með því að láta fljótið renna í gegnum höfnina, því rennsli á að stýra með lokubúnaði eins og gert er hjá virkjunum Landsvirkjunar. Velkominn á <siggigretar.blog.is> þar sem ég skýri þessa hugmynd mína nánar. Það er talandi tákn um klíkuskap fjölmiðla að útvarps- og sjónvarpsstöðvar hafa algjörlega hundsað að nefna þessa hugmynd  þó ég hafi ítrekað sent þeim hana.

Sigurður Grétar Guðmundsson, 2.10.2010 kl. 11:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband