Það sem er að

Það sem er að hjá okkur er að við veljum óhæft fólk til forystu. Annað hefur sjaldan verið í boði því almennilegt heiðarlegt og hæfileikaríkt fólk hefur alltaf valið að starfa utan stjórnmála. Hinir, þessir óhæfu eða minna hæfu, hafa tekið sér stöðu í biðröðinni innan flokkanna eftir feitum stöðum. Þetta byrjar strax í ungliðahreyfingum flokkanna og heldur síðan áfram í gegnum aðildarfélögin og kvenfélögin og allt heila apparatið þar til menn enda sem þingmenn og ráðherrar. Ekki vegna verðleika heldur vegna klíkuskapar.  Á Alþingi núna eru fáir þingmenn sem hafa yfir einhverjum sérstökum hæfileikum eða kunnáttu að ráða sem nýtist við það starf sem þau þykjast öðrum fremri í að sinna. Og þeir fáu sem geta, fá ekki að spreyta sig af því þau eru ekki í réttum flokki, ekki í réttri klíku eða eru ekki nógu flokksspök. Forsetar Alþingis eru ekki valdir vegna yfirburða eða reynslu. Nei, þangað er parkerað fyrrum ráðherrum og öðru fólki sem þarf að verðlauna fyrir flokkshlýðni. Fyrir fastanefndum þingsins fer ekki fólk sem hefur sérþekkingu á þeim málefnum sem nefndirnar eiga að fjalla um. Þar er líka valið í hlutverk samkvæmt goggunarröð flokkanna. Og þá er komið að stærsta vandamálinu, en það er valið í sjalfa ríkisstjórnina. Hér hefur aldrei verið við völd eins flokks stjórn. Þess vegna hefur myndast hefð um að oddvitar stjórnarflokkanna skipti með sér ábyrgðinni af forsætisráðuneytinu. Þetta hafa þeir gert án heimildar í stjórnarskrá lýðveldisins. Síðan hafa þessir oddvitar alræðisvald yfir skipan ráðherra. Og þar hafa alltaf ráðið annarleg sjónarmið sem birtast okkur í því að fagráðuneytum stjórnar aldrei hæfasta fólkið. Þetta er það sem er að í stuttu máli.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Og í þessum töluðu orðum situr þetta óhæfa fólk í þingsalnum undir ræðu útrásarforsetans, nýbúið að meðtaka blessun guðs og biskups. Hræsnin nær alltaf hæstum hæðum á þessari stundu. Þ.e við þingsetningu á hverju hausti

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 1.10.2010 kl. 14:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband