Af sjónarhóli hjólnotanda

Ég bý í miðborginni og ég hjóla allra minna ferða um borgina og hef gert í 12 ár. Þetta er lífsstíll sem ég valdi mér af heilsu og hagkvæmniástæðum. Á þessum árum hefur orðið bylting í viðhorfi til reiðhjólamanna í umferðinni bæði frá bílstjórum og gangandi.  En nú er illt í efni. Athyglissjúkir borgarfulltrúar hafa tekið málaflokkinn upp á sína arma og hyggjast búa til hjólamenningu.  Það líst mér illa á. Ég vil velja mínar leiðir sjálfur og taka mið af aðstæðum en kæri mig ekki um forgang í umferðinni eins og nýleg tilraun á Hverfisgötunni óneitanlega var. Um Hverfisgötuna fara hundrað strætóar á dag og það er heimskulegt að beina hjólaumferð samsíða slíkri þungaumferð. Enda er mjög þægilegt að hjóla á gangstéttunum þar, því ekki eru fótgangandi að þvælast fyrir líkt og á Laugaveginum. Á Laugaveginn vantar hins vegar tilfinnanlega órofinn hjólastíg. Þar væri tilvalið að fjarlægja öll bílastæði og banna umferð stórra flutningabíla og gera hjólastíg samhliða akandi umferð. Yfirleitt er bílaumferðin það hæg að hætta skapast þegar hjólreiðamenn eru að smeygja sér á milli til að komast hraðar yfir og ekki megum við hjóla þar eftir gangstéttunum. Annað sem mér finnst illa lukkað af hálfu Borgaryfirvalda er þessi ömurlega Hjólavefsjá. Til hvers í ósköpunum að eyða fé í þessa hörmung. Ef Borgin á að bjóða uppá svona þjónustu, sem ég efast um, þá væri nær að bæta þeim möguleika við á strætó.is  En hjólreiðamenn finna sér gjarnan sínar eigin leiðir og þurfa enga leiðsögn til þess. Nóg er að Borgin kynni hvar lagningu hjólreiðarstíga er lokið og þá mun umferð um þá finna sér eðlilegan farveg. En aðalatriðið er að viðhalda gagnkvæmri tillitssemi allra í umferðinni. Forréttindi hafa alltaf mælst illa fyrir.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband