Seðlabankinn og ESB sigling Samfylkingarinnar

Eins og málum er háttað þá er núverandi hagstjórn ein allsherjar mistök sem mun leiða yfir okkur annað hrun innan skamms tíma ef við fjarlægjum ekki núverandi stjórnvöld og Seðlabankastjórnendur. Framtíð okkar er ekki sem ómagi í eldhúsinu hjá ESB.  Og svarið við gjaldmiðilshættunni er ekki opið hagkerfi með gervigjaldeyrissjóði sem tekinn er að láni. Vegna þess örhagkerfis sem hér er, þarf þvert á móti strangar gjaldeyrisreglur og miklar takmarkanir á fjármálagerningum eins og afleiðuviðskiptum og spámennsku eins og vogunarsjóðir stunda. Starfsemi þeirra hér á landi á að banna. Eins og ástandið virðist vera í heiminum í dag, óstöðugir gjaldmiðlar og miklar skuldir ættu að vera næg tilefni til að sýna aðgát og gera allt sjóklárt og leggjast síðan í var uns betur viðrar. þessi ESB sigling er feigðarflan og mun fara illa.  Stærsti einstaki útgjaldapóstur fjárlaga eru vaxtagreiðslur af gjaldeyrislánum AGS. En til hvers eru menn að taka lán sem ekki þarf að nota? Til hvers erum við að safna gjaldeyri á erlendum bankareikningum sem aðeins munu brenna upp ef áætlanir Más ganga eftir. Mun hann verða skaðabótaskyldur fyrir því hruni sem hann stefnir okkur í?  Það held ég ekki.  Og við þá alþingismenn sem sífellt klifa á því að erlend lán séu forsendur hagvaxtar þá vil ég segja eitt. Allt hefur sitt verð og enginn maður með fullu viti tekur lán með þeim vöxtum sem okkur bjóðast erlendis frá. Svo hættið að bulla.  Ef einhver dugur er í ykkur þá eigið þið að vinda ykkur í að leyfa fleirum að veiða og stuðla að meiri fullvinnslu á afla hér innanlands. Það er byggðastefna og atvinnustefna sem sómi er að. Sama má segja um landbúnað, losið þssar hömlur sem núna eru að eyðileggja landbúnaðinn. Stuðlið að fjölbreyttum landbúnaði með meira frelsi til úrvinnslu . Hagvöxtur felst nefnilega í nægjusemi líka. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband