4.10.2010 | 13:08
Það á ekki að meta allt til fjár
Tekjur strandsiglinga þurfi að vera 884 milljónir króna
hvorki meira né minna. Ja hver skrambinn. En þar sem ég er sérstakur áhugamaður um strandsiglingar þá finnst mér þessi nálgun starfshópsins vera útí hött. Við eigum ekkert að velta þessum kostnaði fyrir okkur. Það á einfaldlega að leggja þessa kvöð á Samskip ef þeir vilja halda áfram flutningum til og frá landinu. Og það sem meira er, það á að fjölga viðkomustöðum og leggja þar með grundvöll að bættum rekstri litlu hafnanna hringinn í kringum landið. þessi 2007 hugsunarháttur, að samþjöppun og fækkun eininga leiði til hagkvæmni og sparnaðar er bara bull miðað við þjóðhagslegan mælikvarða. Það þarf ekki einu sinni hagfræðing til að sjá það. Hagkvæmnin og sparnaðurinn er eingöngu á annan veginn sem þýðir samsvarandi óhagkvæmni á hina hliðina. Almenningi á Íslandi á ekki lengur að blæða til að einkaaðilar geti hagnast. Og af því hjarta mitt hefur alltaf slegið með landsbyggðinni þá má ég til með að hnýta því við, að sömu rök eigum við að nota gegn kvótahöfunum. Þeirra gróði og hagkvæmni er okkar tap og kostnaður
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:28 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.