Það er órækt í listamannaflórunni Kolbrún!

Kolbrún Halldórsdóttir,forseti Bandalags íslenskra listamanna er ókát. Það er þó ekkert nýtt að vinstri grænir séu ókátir þessi dægrin og hafi allt á hornum sér. En nú er tilefnið þessi árlegi núningur milli listamanna elítunnar og menningarsnauðra fulltrúa skóflupakksins bæði útí þjóðfélaginu og á Alþingi. Í fjárlögum fyrir árið 2011 er gert ráð fyrir 400 milljóna framlagi til listamannalauna. Á krepputímum finnst nú mörgum vel í lagt.  Sérstaklega með tilliti til þess að afrakstur þessara starfa sem almenningur greiðir fyrir virðist ekki ná til neytenda. Það var til dæmis athyglisvert að sjá hið mikla framboð bóka á lagersölu Forlagsins nú í haust. En þar voru hundruð titla nýlegra bóka, íslenskra höfunda seld á brunaútsölu.Höfunda sem hafa undanfarin ár, setið við tölvurnar og framleitt þetta drasl á fullum listamannalaunum.  Ekki er þetta menningararfur morgundagsins Kolbrún!

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband